
Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um bækur sem hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin: Minnisbók Sigurðar Pálssonar og Ljóðhús eftir Þorstein Þorsteinsson.
Síðarnefnda bókin fjallar um skáldskaps Sigfúsar Daðasonar, eins merkasta skálds á Íslandi á síðustu öld.
Meðal gesta í þættinum eru Sigurður Pálsson, Pétur Gunnarsson og Hugleikur Dagsson – hann gefur okkur sýnishorn af svokölluðu ljóðaslammi á óborganlegan hátt.
Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld og allsherjargoði segir frá uppáhaldsbók sinni.
Páll og Kolbrún og Bragi Kristjónsson koma einnig fram í þættinum.