fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Eldflaugavarnir á Íslandi?

Egill Helgason
Sunnudaginn 6. apríl 2008 19:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég benti á það um daginn að Íslendingar hefðu engan áhuga á efni Búkarestsfundar Nató, einungis á hugsanlegum flottræfilshætti ráðherra sem fóru þangað.

Það hefur sannast rækilega.

Örn Arnarson skrifar merkilega fréttaskýringu um fundinn á vef Viðskiptablaðsins.

Hann bendir á að á fundinum hafi Natóríkin samþykkt fyrirætlanir Bandaríkjanna um eldflaugavarnakerfi í Evrópu.

Það þýðir að íslenski forsætisráðherrann og utanríkisráðherrann hafa lýst stuðningi við þessar fyrirætlanir. Í Nató er ekkert sem heitir að sitja hjá; annað hvort eru öll ríkin með eða ekki.

Hér á landi hefur samt ekki farið fram nein umræða um varnarviðbúnað af þessu tagi eins og Örn bendir á.

En þetta hlýtur samt að þýða að Ísland verði með í þessu varnakerfi – og þá hugsanlega að settur verði upp búnaður sem tengist því á landinu.

Björn Bjarnason skrifar um þetta á vef sinn í dag og segir að málið kunni að verða viðkvæmt í Noregi þar sem SF, systurflokkur Vinstri grænna situr í ríkisstjórn.

Björn er stundum svolítið lúmskur í skrifum sínum. Hann nefnir ekki að málið kunni að verða erfitt fyrir Samfylkinguna – en gæti það ekki orðið það?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 11 klukkutímum
Eldflaugavarnir á Íslandi?

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt