fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Eyjan

Verkferlar í Háskóla

Egill Helgason
Laugardaginn 5. apríl 2008 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

hi5.jpg

Háskólarektor segir að þurfi að endurskoða „verkferla“ innan Háskólans vegna dómsins yfir Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni.

Nú er það reyndar svo að háskólar hafa starfað í mörg hundruð ár áður en þessi dómur var kveðinn upp.

Hefðirnar hafa verið að mótast alveg síðan í Bologna, Oxford, Cambridge, Salamanca og París en háskólarnir á þessum stöðum eru allir frá því á miðöldum.

Til dæmis er mikið lagt upp úr frumlegri og sjálfstæðri hugsun. Að háskólakennarar sinni ekki bara kennslu og stjórnunarstörfum heldur leggi eitthvað marktækt fram í rannsóknum.

Að þeir hafi einhverjar hugmyndir. Skrifi greinar og bækur. Leggi stund á vísindi.

Annars eru háskólar mjög sérkennilegar stofnanir. Líklega er hvergi að finna jafn miklar gróðrarstíur öfundar, illmælgi og beiskju. Sumir segja að eini vettvangurinn sem jafnist við þetta séu ef til vill leikhúsin.

Skáldsögur sem gerast í háskólum og fjalla um svona líf eru heil bókmenntagrein í Bretlandi – ég nefni til dæmis bækur Davids Lodge, Malcolms Bradbury og Toms Sharpe.

Annars er alþjóðlega orðið yfir þessar stofnanir universitas. Ég hef áður fært rök fyrir því að „háskóli“ sé orð sem er búið að nota þannig að það er ekki boðlegt lengur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 11 klukkutímum
Verkferlar í Háskóla

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt