
Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um bókina Íslamistar og naívistar. Bókin er skrifuð af Dönunum Karen Jespersen og Ralf Pittelkow og vakti miklar deilur þegar hún kom út í Danmörku. Fyrir stuttu birtist hún svo í íslenskri þýðingu.
Í framhaldi af því verður sagt frá Egyptanum Sayid Qutb sem kalla má föður íslamismans.
Í þættinum verður skýrt frá tilnefningum til íslensku þýðingarverðlaunanna sem verða veitt síðar í þessum mánuði. Fjallað verður um málfrelsissjóð til handa Hannesi H. Gissurarsyni, nokkrar nýútkomnar kiljur og skáldkonuna Ástu Sigurðardóttur.
Meðal gesta í þættinum eru Þórdís Bachmann blaðamaður, Börkur Gunnarsson friðargæsluliði, Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur, Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur og Árni Matthíasson blaðamaður.
Páll Baldvin, Kolbrún og Bragi eru á sínum stað.