
Ég sit hér með íbúfenglas í hendi og yfirvofandi hausverk og bíð eftir að vörubílstjórarnir hætti að flauta.
En kannski hætta þeir aldrei – þeir gætu flautað til eilífðarnóns en varla lækkar eldsneytisverð í heiminum.
Frekar að það hækki.
En Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde eru á leiðinni úr landi í einkaflugvél. Ólafur Ragnar er í New York.
Kannski er þetta bylting meiraprófsmannanna – og þau í öruggri fjarlægð?
Hvar er víkingasveitin?