fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

It´s the economy

Egill Helgason
Fimmtudaginn 20. mars 2008 17:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

It´s the economy, stupid! var frasi sem var mikið notaður í kosningunum 1992 þegar Bill Clinton sigraði George Herbert Bush, föður núverandi Bandaríkjaforseta.

Þá var stutt samdráttarskeið í efnahagslífinu. Á tíma Clintons var síðan mikill uppgangur. Margir Bandaríkjamenn minnast þeiss tíma sem einhvers konar gullaldar.

Á tíma Bush yngri hefur efnahagur Bandaríkjanna verið keyrður svo í þrot að það er við það að valda heimskreppu. Þetta verður aðal málið í forsetakosningunum í nóvember.

Þetta ætti að vera styrkur fyrir Hillary Clinton, en veikir um leið framboð hins lítt reynda Baraks Obama. Hún er hefur tengsl við tíma þegar efnahagurinn var í lagi.

Hvað John McCain varðar þá vill maður ekki trúa því að Bandaríkjamenn kjósi karlugluna yfir sig. Þegar efnahagsmálin eru annars vegar virkar hann ekki traustvekjandi.

En nýs forseta Bandaríkjanna bíður verkefni sem er ekki sérlega öfundsvert. Hann tekur við ríki sem er í kalda koli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 klukkutíma
It´s the economy

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Fortinet verðlaunar OK
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt