fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Geðhvörf

Egill Helgason
Fimmtudaginn 20. mars 2008 00:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég held að margt bendi til þess að íslenska þjóðin sé haldin geðhvarfasýki. Sé maníu-depressíf. Maður hefur séð þetta birtast í vægri útgáfu í Evrovisjón keppninni. Svo í DeCode æðinu. Ástandið í efnahagslífinu hefur líka einkenni geðhvarfa. Við trúðum því í alvörunni að íslenskir fjármálamenn væru klárari en aðrir fjármálamenn; kynnu eitthvað sem aðrir kynnu ekki.

Svo þegar var bent á að þetta væri kannski ekki endilega svona þá brugðust Íslendingar reiðir við. Töluðu um að Danir hötuðu okkur. Við værum jú að leggja undir okkur Danmörku; það þyldu Danir einfaldlega ekki.

Við værum einfaldlega klárari en þeir – við með okkar tíu ára gamla hlutabréfamarkað – klárari en þjóð sem hefur nær eingöngu lifað á viðskiptum í mörg hundruð ár.

Baldur McQueen hefur oft lagt til gott á þessari síðu. Ég les þessa færslu hans í athugasemdadálki – stenst ekki mátið að birta hana í heild sinni:

„Ef það fer svona fyrir brjóstið á fólki að glensi sé varpað fram er sjálfsagt að koma með háalvarlega greiningu á stöðunni.

1. Íslendingar (100%) hafa haft mörg ár til að undirbúa sig undir það nú hefur gerst. Viðvaranir hafa ekki talist í tugum eða hundruðum – heldur þúsundum. Ef ég, auminginn og “ekkert-ið” gat séð það fyrir, gat hver sem er séð það fyrir.

2. Íslendingar (eða hluti) hafa ævinlega hlegið að þeim og gert lítið úr sem spaklegast hafa mælt. Hvort sem er þeim sem varað hafa við hvert stefndi – eða þeim sem vildu bregðast við með stórauknu eftirliti/reglugerðum með fjármála- og viðskiptalífi landsmanna.
Fussað hefur verið yfir slíkum vangaveltum.

3. Íslendingar (eða hluti) fá ávallt glýju í augun þegar þeir nálgast valdsmenn. Þess vegna hafa þeir samþykkt glórulausar ráðningar vonlausra aðila í mikilvægar stöður og klappað hátt þegar unnin hafa verið skemmdarverk á undirstöðum landsmanna – og nauðsynlegar stofnanir lagðar niður.

Engum hafa Íslendingar (eða hluti) ruggað meir en hrokafullum tudda sem öllu stjórnaði hér fyrir skömmu og stjórnar nú enn verr úr öðru sæti. Því ókurteisari sem sá maður var við þjóðina – því meira var klappað.

4. Íslendingar (eða hluti) hatast út í útlöndin – en fá svo aðsvif að þjóðarstolti þegar logið er að þeim að íslenskir kaupsýslumenn hafi uppgötvað formúlu sem enginn annar í heiminum hafi fattað og séu að raka inn seðlum á uppgötvuninni. Þeir kokgleypa þetta og vilja heyra meira af “víkingunum” sínum.

Ekki nóg með það – heldur trúa þeir (eða hluti) í árafjöld að formúlan sé enn einungis kunn íslenskum viðskiptavíkingum, rétt eins og aðrar þjóðir væru ekki búnar að taka upp þessar aðferðir ef þær væru einhvers virði!

Þetta einfaldlega gat ekki farið öðruvísi. Þorri Íslendinga trúir valdsmönnum og ríkisbubbum í blindni og samþykkja hvaða spillingu sem er. Aðferð Íslendinga: “nöldur í viku” – skilar ENGU.

Slík kerfi hrynja ALLTAF á endanum.

Það má vel vera að Ísland hrynji ekki í dag – og vonandi ekki á morgun – en þar til menn fara að gera KRÖFUR til þeirra sem stjórna mun leiðin liggja niður á við.

Þar til landsmenn ná að greina á milli þeirra sem, annars vegar vilja ÞJÓÐINNI vel og hins vegar vilja VINUM sínum vel – mun leiðin liggja niður á við.

Þar til þjóðin nær hausnum frá aðkeyptum flatskjám og blöðrujeppum og fer að horfa í kringum sig; meta raunveruleikann – hlusta – mun leiðin stefna niður á við.

Kallist ég hrokafullur besservisser fyrir að segja þennan augljósa sannleika er ég stoltur af því heiti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Rétt í þessu
Geðhvörf

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt