
Það var skrítinn fuglasveimur yfir Miðbænum í ljósaskiptunum í kvöld. Barst fram og aftur um himininn, einkennilega samtaka. Þúsundir fugla.
Svo allt í einu þyrptust þeir inn í limgerðið sem hangir utan á Eymundssonar húsinu. Fleiri og fleiri. Þangað til það var allt iðandi.
Skrítin sjón.