fbpx
Mánudagur 17.nóvember 2025
Eyjan

Friðarbaráttan tekur á sig ýmsar myndir

Egill Helgason
Sunnudaginn 2. desember 2007 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér eru tvær tilvitnanir í greinar sem birtast á vef Samtaka hernaðarandstæðinga. Önnur  gengur út á að íslamisminn sé andstöðuafl gegn heimsvaldastefnunni og því beri hernaðarandstæðingum að styðja hann.

Hin heldur því meðal annars fram að hryðjuverkin í London hafi verið framin í London af verktakafyrirtæki í umboði bresku stjórnarinnar.

Þetta er úr grein eftir Þórarin Hjartarson:

 „Brennipunktur baráttunnar gegn heimsvaldastefnunni er nú í Austurlöndum nær, Afghanistan, Írak, Íran, Palestínu, Líbanon. Það sjá þeir sem vilja sjá. Ofbeldi og yfirgangur elur af sér andstöðu. Það er mennskt, eðlilegt og heilbrigt, en ekki af því fólkið hafi sýkst af stríðsmenningu eða ofbeldishneigð. Það er líka auðséð að hugmyndafræði viðnámsins gegn heimsvaldastefnunni er nú ekki sósíalismi og hefðbundinn vinstrimennska sem við þekkjum heldur oftast einhverjar tegundir af íslamisma. Og íslamisminn er beinn drifkraftur í baráttunni. Ég hef trú á því að róttækur íslamismi muni þróast yfir í meiri andkapítalisma og tel að hann sé að því nú þegar. En aðalatriðið er að þetta er nú brennipunkturinn í baráttu alþýðu heimsins og hana ber að styðja á hennar eigin forsendum.“ 

Og þetta úr grein eftir Elías Davíðsson:

„Árið á undan dóu rúmlega 50 manns í London í meintri hryðjuverkaárás, sem margir Bretar telja hafi verið skipulögð af bresku leyniþjónustunni í samvinnu við fyrirtækið Visor Consultants. Það er því ekki tilviljun, að engar tölur um mannfall af völdum hryðjuverka finnast í skýrslum NATO, Evrópusambandsins eða Sameinuðu þjóðanna um hryðjuverkaógnina. Slík blekking á sér varla hliðstæðu í nútímanum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár

Rósa sat sinn síðasta bæjarráðsfund og lagði fram tillögu sem hún hefur gengið með í 3-4 ár
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurður Hólmar skrifar: Ísland sofandi á meðan heimurinn vaknar

Sigurður Hólmar skrifar: Ísland sofandi á meðan heimurinn vaknar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar