fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Svona klæða stjörnurnar sig – götustíll vikunnar

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 21. júlí 2020 22:00

Blómarós: Leikkonan Scarlett Johansson ljómaði eins og sólin umkringd blómum á bændamarkaði í New York í vikunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjörnurnar hafa oft ótakmarkað fé til að ráðstafa í útlit sitt; hvort sem um ræðir hár, húð, andlit, líkama eða fatnað. Þær ráða stílista, einkakokka, hárgreiðslumeistara, förðunarfræðinga, einkaþjálfara, lýtalækna, persónulega gúrúa og svo mætti lengi telja. Ekki veitir af þar sem líf þeirra er stöðugt undir smásjá. En það eru ekki allir dagar rauða dregils dagar og það er gaman að fylgjast með því hverju fræga fólkið velur að klæðast í amstri hversdagsins. Þessar stjörnur komust á listann þessa vikuna.

Óður til fortíðar: Tískufrömuðurinn og áhrifavaldurinn Olivia Palermo var smart frá toppi til táar á röltinu í Brooklyn. Hún var í retró satínpilsi frá Max & Co, blárri blússu í stíl, silfruðum Roger Vivier bomsum og utan um hefðbundna andlitsgrímu bar hún silkiklút frá Le Scarf.
Djarfur djammgalli: Söngkonan Iggy Azalea er eiginlega bara geggjuð í þessum þrönga, vintage Jean Paul Gaultier samfesting á leiðinni út á lífið í Los Angeles. Það er eins og hann sé bókstaflega sniðinn á hana.
Arabíunætur: Angelina Jolie á leiðinni í hádegisverð að hitta son sinn Pax. Leikkonan spókaði sig um í Hollywood í skósíðum kjól, sandölum og með andlitsgrímu í stíl og minnti helst á persónu úr 1001 nótt.
Eins og kóngur: Söngvarinn Nick Cannon sést sjaldan án þess að vera með túrban um höfuðið en hann hefur sagt að slík höfuðföt láti honum líða eins og kóngi.
Allt í gangi: Það er eitthvað svo dásamlegt við þessa mynd af leikkonunni Zoe Kravitz sem var tekin í Brooklyn í síðustu viku. Allt frá lakkskónum og stelpulegu sokkunum að plasthönskunum, grímunni og heyrnartólunum.
Barbie bleik: Erfðaprinsessan Paris Hilton var eins og Barbie dúkka til fara í hjólatúr á bleika hjólinu sínu í Beverly Hills á dögunum.
Minna er meira: Fyrirsætan Winnie Harlow á leið til hádegisverðar á Il Pastaio í Beverly Hills í ákaflega efnislitlum klæðnaði og geislaði af sjálfsöryggi.
Sæt í bleiku: Suri Cruise, dóttir Katie Holmes og Tom Cruise, á leiðinni í hádegisverð ásamt vinkonum sínum í New York.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Þrjú stórlið vilja kaupa óvænta hetju Real Madrid

Þrjú stórlið vilja kaupa óvænta hetju Real Madrid
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm

Rannsóknar-Ríkharð með kenningu um það hvernig komst upp um brot Búa og Ísaks – Fengu báðir þungan dóm
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Emma Stone vill ekki lengur vera kölluð Emma

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.