fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Myndatakan misheppnaðist skelfilega – Sjáðu augnablikið þegar hundurinn beit hana

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 17. janúar 2020 09:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Unglingsstúlkan Lara Sanson frá Argentínu þurfti að láta sauma 40 spor í andliti sínu eftir að hundur beit hana. Lara var að stilla sér upp á mynd með hundi vinkonu sinnar og hélt utan um hann. Skyndilega sneri hundurinn sér við og beit hana í andlitið. Hundurinn er þýskur fjárhundur (e. german shepherd).

Rétt áður en að hundurinn beit hana.

Lara, 17 ára, deildi nýlega myndunum af atvikinu á Twitter. Fyrst má sjá hana brosa og halda utan um hundinn og síðan má sjá hundinn bíta hana.

Hún skrifaði með færslunni: „Misheppnuð myndataka.“

Lara þurfti að gangast undir tveggja klukkutíma aðgerð og sauma þurfti spor í andlit hennar, munn og góm hennar.

Hún segist ekki hafa fundið fyrir miklum sársauka þegar hundurinn beit hana og hún trúir því ekki að hundurinn hafi ætlað sér að bíta hana.

Það þurfti að sauma 40 spor.

„Ég veit ekki hvort þetta var vegna þess að ég snerti mjöðmina hans eða vegna þess að hann er gamall, eða því ég knúsaði hann og hræddi hann,“ sagði Lara í samtali við argentínska dagblaðið La Nacion. Hún sagði að hundurinn verður ekki svæfður eftir árásina.

Lara er að ná góðum bata en á erfitt með að borða.

Hún á erfitt með að borða.

Færslan hefur vakið mikla athygli á Twitter.

„Það ætti aldrei að taka utan um hund um háls hans. Ekki setja andlitið nálægt honum því eðlishvöt hans segir að þú ætlir að ráðast á hann. Hálsinn er viðkvæmasti staður hundsins. Ánægð að það fór ekki verr,“ skrifaði einn netverji.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.