fbpx
Laugardagur 04.maí 2024

Hún á fjóra kærasta og er ólétt – Erfitt að skipta tímanum jafnt á milli allra: „Við ætlum öll að ala upp barnið“

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 17. desember 2019 09:47

F.v.: Mark, Chris, Tory, Ethan og Travis.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tory á fjóra kærasta. Travis, Ethan, Mark og Chris. Hún er einnig ólétt og ætla þau fimm að ala upp barnið saman. Þau koma fram í þætti Barcroft TV og segja frá óhefðbundnu sambandsformi sínu.

Kynntust í skóla

Fyrst voru það bara Tory og Travis. Travis stakk upp á að þau myndu prófa fjölsamband og byrjaði Ethan með þeim í sambandi.  Þau þekktu hann bæði úr skóla (e. junior high). Næst bættist Mark við sambandið, og þekkti Tory hann úr framhaldsskóla. Svo er Chris nýjasta viðbótin.

Eitt helsta áhugamál þeirra eru borðleikir og segjast þau öll vera með frekar mikið keppnisskap.

Uppi frá vinstri: Mark, Chris.
Niðri frá vinstri: Travis, Tory og Ethan.

Mennirnir eru aðeins í rómantísku sambandi með Tory, en ekki hvor öðrum.

„Þeim er öllum meira en velkomið að eignast annan maka ef þeir vilja. Ég myndi elska það ef einhver myndi eignast annan maka. Að skipta niður tímanum jafnt á milli allra og passa upp á að engum finnist þeir undanskildir er erfitt,“ segir Tory.

Aðspurð hversu oft þau upplifi afbrýðisemi í sambandinu segir Ethan það gerast oft.

„En sem betur fer eru nokkrar heilbrigðar leiðir til að kljást við það, þá allra helst að tala saman,“ segir Ethan.

„Við eigum til að tala í kringum hlutina frekar en að segja bara hreint og beint út: Ég vill eyða tíma með Tory,“ segir Travis.

Travis segist ekki vilja útiloka það að eiga rómantískt samband við hina mennina. „Ég og Ethan svona eiginlega reyndum að eiga samband í framhaldsskóla en það misheppnaðist mjög hratt,“ segir hann.

Travis.

Ólétt

Tory er komin um 24 vikur á leið í þættinum. Chris er líffræðilegur faðir barnsins.

„Við vitum það út frá tímasetningunni, en við erum öll að ala upp barnið svo allir eru pabbar,“ segir Tory.

„Ég er kannski ekki alveg hlutlaus en ég gæti ekki hugsað mér betri fjölskyldu til að ala upp barn,“ segir Chris.

Horfðu á þátt Barcroft TV hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=AkA5jH36_Ks

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hrafnkell telur þetta ástæðuna fyrir að Íslendingar bregðist svona við

Hrafnkell telur þetta ástæðuna fyrir að Íslendingar bregðist svona við
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arteta skilur lítið í fréttunum – „Veit ekki hvaðan þær koma“

Arteta skilur lítið í fréttunum – „Veit ekki hvaðan þær koma“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Kjartan Atli gestur

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Kjartan Atli gestur
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Dómur yfir Inga Val fyrir nauðgun á unglingsstúlku þyngdur í Landsrétti

Dómur yfir Inga Val fyrir nauðgun á unglingsstúlku þyngdur í Landsrétti
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Neðri deildir karla rúlla af stað um helgina

Neðri deildir karla rúlla af stað um helgina
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Lýsingar á meintu broti Kolbeins í ákæru – Málið var tekið fyrir í gær

Lýsingar á meintu broti Kolbeins í ákæru – Málið var tekið fyrir í gær
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum markvörður Arsenal á leið til Chelsea?

Fyrrum markvörður Arsenal á leið til Chelsea?
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

María Sigrún fær uppreist æru – Fréttaskýringin sem var stöðvuð verður sýnd á mánudaginn

María Sigrún fær uppreist æru – Fréttaskýringin sem var stöðvuð verður sýnd á mánudaginn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.