fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Háskólanemi féll 24 metra eftir að hafa stundað jóga á svölunum

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 30. ágúst 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Háskólaneminn Alexa Terrazas féll um 24 metra niður af svölunum heima hjá sér. Hún var að stunda jóga og notaði handriðið til að gera hættulegar jógastöður.

Hún mun þurfa að fara í nokkrar aðgerðir til að endurbyggja ökkla sína og hné, og það getur verið að hún muni ekki ganga aftur fyrr en eftir þrjú ár.

Slysið átti sér stað síðasta laugardag í norðaustur Mexíkó. Alexa var að gera áhættusamar jógastöður og missti jafnvægi sitt.

Hún var vön að gera jóga á svölunum heima hjá sér og notaði handriðið til að gera alls konar jógastöður. Nágrannar hennar sáu hana oft, meðal annars þegar hún var að gera stöðuna sem má sjá á myndinni hér að ofan. EL Imparcial greinir frá.

Alexa lenti á gangstéttinni fyrir neðan svalirnar og brotnaði á mörgum stöðum, meðal annars handleggjunum, fótleggjunum, mjöðminni og höfðinu. Hún fór í ellefu klukkustunda aðgerð og er í lífshættulegu ástandi.

Vinkona Alexu segir frá því á Twitter að hún muni þurfa að fara í fleiri aðgerðir og það þurfi að endurbyggja ökkla hennar og hné svo hún geti vonandi gengið aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar

Í forgangi að styrkja þessar þrjár stöður hjá United í sumar
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.