fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
Fókus

Sharon Osbourne dauðsér eftir Ozempic – „Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax“

Fókus
Fimmtudaginn 21. nóvember 2024 09:29

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsstjarnan Sharon Osbourne dauðsér eftir því að hafa notað Ozempic. Hún léttist allt of mikið allt of hratt og nær ekki að bæta aftur á sig.

Útlit Sharon, 72 ára, hefur vakið mikla athygli og áhyggjur undanfarið, en hún varð mjög grönn og beinaber í kjölfar Ozempic notkunar.

Fyrir ári síðan sagði Sharon í spjallþætti Piers Morgan að hún væri orðin „of grönn“ eftir að hafa notað Ozempic til að grennast og að matarlystin hennar væri ekki komin að fullu til baka.

„Ég varð að hætta. Ég vildi ekki verða svona grönn en það bara gerðist,“ sagði hún og bætti við: „Ég bæti þessu örugglega á mig aftur.“

Nú er ár liðið og ekkert gengur. Samkvæmt heimildarmanni RadarOnline telur Sharon að „þessi megrunarlyf hafi eyðilagt brennsluna hennar og að það sé engin leið fyrir hana til baka.“

Heimildarmaðurinn bætti við: „Hún getur ekki bætt aftur á sig, og hún þarf að þyngjast af heilsufarslegum ástæðum. Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax (e. quick fix).“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí
Fókus
Fyrir 2 dögum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug
Fókus
Fyrir 4 dögum

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk