fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
433Sport

Ótrúleg frásögn frá Ísrael – Nafn Messi kom í veg fyrir að 90 ára gömul kona var tekin til fanga

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 8. mars 2024 13:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spænski fjölmiðillinn Marca segir í dag frá ótrúlegu atviki sem átti sér stað í Ísrael í gær. Þar komst 90 ára gömul kona hjá því að vera tekin til fanga af Hamas-liðum með því að minnast á Lionel Messi.

Í gærmorgun gerði Hamas árás á Ísrael þar sem 250 ísraleskir ríkisborgarar og hermenn voru teknir til fanga og fluttir til Gaza. Hin 90 ára gamla Ester Cunio lenti í því að ráðist var inn á heimili hennar.

Vopnaðir menn kröfðust þess að fá að vita hvar fjölskyldumeðlimir Cunio væru niðurkomnir en þá sagðist hún vera frá Argentínu. Einn mannanna spurði hvar það væri og þá spurði Cunio hvort hann horfði á fótbolta.

„Hann sagðist horfa á fótbolta og þá sagðist ég vera frá landinu hans Messi. Hann varð mjög hissa og sagðist elska Messi. Hann setti hönd sína á öxlina á mér og rétti mér byssuna sína. Hann fékk mig svo til að vera á mynd með honum,“ sagði Cunio, en mennirnir slepptu henni í kjölfarið.

Barnabörn hennar voru hins vegar tekin til fanga og Cunio biður um að þeim verði sleppt.

„Ef Lionel veit af því að ég minntist á hann og var bjargað myndi ég vilja fá barnabörnin mín til baka núna,“ sagði Cunio.

Cunio og einn ræningjanna.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Besta deild kvenna: Vandræði Vals halda áfram

Besta deild kvenna: Vandræði Vals halda áfram
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Einkunnir eftir frábæran fyrsta sigur Arnars með landsliðið – Elías Rafn bestur og setur alvöru pressu á þjálfarann

Einkunnir eftir frábæran fyrsta sigur Arnars með landsliðið – Elías Rafn bestur og setur alvöru pressu á þjálfarann
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Embættismenn segja að áfengissala verði ekki heimiluð á HM 2034

Embættismenn segja að áfengissala verði ekki heimiluð á HM 2034
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Palmer fær nýtt númer

Palmer fær nýtt númer
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Liverpool að klófesta mjög efnilegan markvörð

Liverpool að klófesta mjög efnilegan markvörð
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Tvö nokkuð óvænt nöfn komin á blað hjá Arsenal

Tvö nokkuð óvænt nöfn komin á blað hjá Arsenal
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Uppeldisfélag Wirtz fylgist með og setur pressu á að Liverpool borgi meira

Uppeldisfélag Wirtz fylgist með og setur pressu á að Liverpool borgi meira