fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
433Sport

Hvað er að gerast hjá Chelsea? Stjörnur liðsins sagðar vera orðnar órólegar

433
Miðvikudaginn 7. febrúar 2024 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkrir leikmenn Chelsea sem keyptir voru á stórar fjárhæðir og skrifuðu undir langa samninga eru sagðir vera orðnir órólegir á slöku gengi liðsins.

Chelsea hefur gengið allt á afturfótunum að undanförnu og í raun alveg síðan Roman Abramovich seldi félagið eftir innrás Rússa í Úkraínu.

Chelsea er í 11. sæti deildarinnar með 31 stig og bendir ekki margt til þess að liðið nái Evrópusæti á næsta tímabili.

The Athletic segir að nokkrir leikmenn, sem áttu að vera lykilmenn í uppbyggingu félagsins, séu komnir með bakþanka eftir að hafa samið við félagið.

Engir leikmenn eru nefndir á nafn en þó bent á að Enzo Fernandez, Moises Caiced, Mykhailo Mudryk og Nicolas Jackson hafi skrifað undir langa samninga. Allir þessir leikmenn eru samningsbundnir Chelsea til ársins 2031.

Aðrir leikmenn eru með samninga til ársins 2030, til dæmis Romeo Lavia, Cole Palmer, Noni Madueke, Robert Sanchez og Benoit Badiashile.

Í umfjöllun The Athletic, sem Daily Mail vitnar til, kemur fram að leikmenn hafi rætt þessi mál sín á milli og séu ósáttir með þær litlu framfarir sem hafa orðið á leik liðsins. Þá hafi einhverjir gagnrýnt að félagið hafi selt þeim ákveðna hugmyndafræði en þeim orðum hafi ekki fylgt neinar efndir.

Chelsea mætir Aston Villa á útivelli í enska bikarnum í kvöld og er viðbúið að erfitt verkefni bíði liðsins enda Aston Villa í harðri Meistaradeildarbaráttu. Svo eru fram undan tveir leikir í ensku deildinni; heimaleikur gegn Crystal Palace um helgina og svo útileikur gegn Manchester City.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Forsetinn biðlar til Real Madrid

Forsetinn biðlar til Real Madrid
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land

Amorim gefst upp á Baleba og horfir norður í land
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Kemur Gyokeres til varnar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum
Salah snýr aftur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Bayern ætlar að funda með Guehi á fyrsta degi ársins

Bayern ætlar að funda með Guehi á fyrsta degi ársins
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Las biblíuna til að komast í gegnum erfiða tíma – „En svo áttaði ég mig á að ég þurfti að nálgast Jesú“

Las biblíuna til að komast í gegnum erfiða tíma – „En svo áttaði ég mig á að ég þurfti að nálgast Jesú“
433Sport
Í gær

Slot staðfestir fund með Mo Salah í dag – Þar kemur í ljós hvernig framhaldið verður

Slot staðfestir fund með Mo Salah í dag – Þar kemur í ljós hvernig framhaldið verður
433Sport
Í gær

Fyrrum þjálfari hjá United skilur ekki af hverju Amorim þori ekki að prófa þetta

Fyrrum þjálfari hjá United skilur ekki af hverju Amorim þori ekki að prófa þetta