

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Það fer fram svakalegur leikur í Bestu deild karla á þriðjudag þegar topplið Víkings og KR eigast við í Víkinni. Þegar er uppselt.
„Það er í raun engin niðurstaða sem kæmi manni á óvart fyrir utan ef KR vinnur og heldur hreinu. Annars getur allt gerst,“ sagði Helgi.
„Ég á erfitt með að sjá milliveginn. Ég sé annað hvort 4-4 jafntefli eða 6-1 sigur Víkings. Sölvi er ekkert hræddur við það að droppa aðeins, fá þessa tíu sóknarmenn KR í andlitið og fara svo hratt upp völlinn,“ sagði Hörður.
Þátturinn er í spilaranum.