fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fréttir

Að minnsta kosti þrír handteknir í aðgerðum sérsveitar og lögreglu í Flúðaseli – Sama íbúð og síðast

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. september 2023 14:35

Sérsveit ríkislögreglustjóra á æfingu í Árbæ. Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að minnsta kosti þrír einstaklingar voru handteknir í lögregluaðgerð í Flúðaseli í Breiðholti skömmu eftir hádegi í dag. RÚV greindi fyrst frá en á vef miðilsins má sjá myndir frá aðgerðinni.  Lögreglan naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Kemur fram í frétt miðilsins að lögregla hafi verið að fylgja eftir máli sem hefur verið til rannsóknar.

Útkallið var vegna einstaklinga í sömu íbúð og lögregla var kölluð út vegna í byrjun september og vakti mikla athygli. Þar handtók lögregla mann og leiddi hann út á nærbuxunum einum fata sem vakti hörð viðbrögð hjá Afstöðu, félagi fanga,  sem birti yfirlýsingu vegna málsins. Sakaði Afstaða lögreglu um að svipta fólk mannlegri reisn með því að handtaka það fáklætt.

Skjáskot Vísir.is

Í frétt DV um málið var haft eftir nágranna í Flúðaseli að  umræddur maður hafi oft sést spranga um stigagang hússins á nærbuxunum einum fata en hann og tveir samleigjendur hans hafi valdið usla um nokkurt skeið.

„Það er búið að vera vesen með þessa gaura í smá tíma. Hafa stolið frá öðrum íbúum stigagangsins,“ segir nágranni sem DV ræddi þá. Þá hafi verið  orðrómur um fíkniefnasölu úr leiguherbergi þeirra en það er ekki staðfest. Um miðjan ágúst hafi farið fram húsleit í herberginu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jón leggur til róttæka breytingu á frídögum – „Að mínu mati er þetta fyrirkomulag óheppilegt“

Jón leggur til róttæka breytingu á frídögum – „Að mínu mati er þetta fyrirkomulag óheppilegt“
Fréttir
Í gær

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“

Þorvaldur Lúðvík íhugar réttarstöðu sína eftir Kastljósið í gær – „Ég hefði engu breytt eða gert öðruvísi“
Fréttir
Í gær

Skagfirðingur á níræðisaldri keyrði fullur og lét sig hverfa

Skagfirðingur á níræðisaldri keyrði fullur og lét sig hverfa
Fréttir
Í gær

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína

Spæjarastofa Jóns Óttars sökuð um að nýta stolin gögn frá lögreglu og saksóknara til að selja þjónustu sína