Dómstóll í Dresden sakfelldi í síðustu viku fjóra aðgerðasinna úr röðum vinstrimanna fyrir árásir á nýnasista. Meðal hinna dæmdu er Lina E, sem er vel þekkt í Þýskalandi, sem var dæmd í fimm ára fangelsi. Dómarnir voru á bilinu tveggja til fimm ára fangelsi.
Öfgavinstrimenn söfnuðust saman í Leipzig á laugardagskvöldið til að mótmæla dómunum en Lina E. er frá Leipzig.
Lögreglan lagði bann við mótmælunum en mótmælendur höfðu það bann að engu og söfnuðust saman.
Lögreglan reyndi í fyrstu að koma til móts við mótmælendur og leyfa þeim að mótmæla en þegar þeir gripu til ofbeldis og réðust á lögreglumenn svaraði lögreglan af hörku og voru fimm handteknir. Um 50 lögreglumenn slösuðust í átökunum.