Arizona´s Family segir að Fischer hafi verið úti við í heimabæ sínum Florence og hafi hundurinn hans, Pippin, verið með honum þegar býflugnasveimur réðst á þá.
Pippin tókst að flýja en Fischer, sem notast við hjólastól, var ekki svo heppinn því hjólastólinn hans valt og var þá auðvelt fyrir flugurnar að ná honum og ráðast á hann.
Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem honum var gefið morfín og broddar flugnanna voru fjarlægðir úr líkama hans. Hann sagði að hjúkrunarfólk hafi fundið rúmlega 250 brodda í líkama hans.
Hann hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsinu og er nú að jafna sig á stungunum en hann var stunginn í handleggi, augu, munn, eyru, fótleggi og bakið.
Pippin slapp með um 50 stungur og er einnig að jafna sig.
Talið er að drápsbýflugur hafi ráðist á þá og þykir því ótrúlegt að þeir hafi lifað árásina af.
Drápsbýflugur voru ræktaðar af brasilískum vísindamönnum þegar þeir gerðu tilraun með að blanda evrópskum hunangsbýflugum við afrískar hunangsbýflugur. Þessi blendingstegund færði sig síðan norður á bóginn eftir Ameríku og náði til Bandaríkjanna á endanum.
Með tímanum fékk hún viðurnefnið „drápsbýflugur“ vegna árásargirni hennar og mikillar tilhneigingar til að mynda stóra hópa áður en ráðist er á fólk eða dýr. Eitur tegundarinnar er ekki öflugra en eitur evrópskra hunangsflugna.