Lík fannst í fjöru skammt frá Borgarnesi í dag. Frá þessu greinir fréttastofa RÚV sem hefur það frá lögreglu að rannsókn sé nú í gangi og unnið að því að bera kennsl á hinn látna.
Mun lögregla senda frá sér upplýsingar þegar staðfest hefur verið hver hinn látni er og haft hefur verið samband við aðstandendur.