fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Sólveig um formann VR – „Ég hef engan áhuga á að deila kven-bálkestinum mínum með blásaklausum karli“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 10. mars 2023 17:15

Sólveig Anna Jónsdóttir Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sver af sér aðkomu Ragnar Þórs Ingólfsssonar formanns VR að „kven-demonískum ákvarðanatökum mínum eða fyrirætlunum sem kven-formanni í verkalýðshreyfingunni. Þar ber ég alla sök og hann enga,“ segir Sólveig sem segist vera kvenréttindakona frá blautu barnsbeini og ávallt verið meðvituð um sitt eigið „agency.“

Segir Sólveig að í kosningabaráttunni sem nú stendur yfir í VR hafi það þótt smart hjá vissri kreðsu að gera formann VR samsekan henni í margvíslegri glæpastarfsemi hennar eða kenna Ragnari Þóri um hvað hún sé vond. 

„Þessi kreðsa er samt að eigin sögn gríðarlega femínísk. Þetta finnst mér voðalega ruglandi því síðast þegar að ég vissi þá er mjög mikilvægt í femínískum fræðum að boða „agency“ (verkun) sem þátt í valdeflingu kvenna; getu kvenna til að grípa til markvissra aðgerða og stefna sjálfstætt að markmiðum, algjörlega óháð því hvað mönnum finnst, hvað þeir vilja eða hvaða skoðanir þeir hafa.“

Sólveig segist mál að linni. Segist hún tilbúin í margt en ekki það að ábyrgðinni á henni sé klínt á menn út í bæ

„Ég er tilbúin til að játa samneyti við ketti og kölska, og geitur, bæði frekju og venjulegar, mörg síðustu ár. Og ef að þau vilja axla ábyrgð á hegðun minni og framkomu þá mun ég ekki gera neinar sérstakar athugasemdir við það. En sem kvenréttindakona bókstaflega krefst ég þess að hætt verði að reyna að klína ábyrgðinni á mér á menn útí bæ. Í nafni móðurgyðjunnar, hingað og ekki lengra: Ég hef engan áhuga á að deila kven-bálkestinum mínum með blásaklausum karli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind

Mikið fjör á Takkleikum í Smáralind
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gómuðu maurasmyglara á flugvelli – Meira en 2 þúsund skorkvikindi í tilraunaglösum

Gómuðu maurasmyglara á flugvelli – Meira en 2 þúsund skorkvikindi í tilraunaglösum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Konur í Sósíalistaflokknum hjóla í Sönnu – Hafi lýst yfir stuðningi við einstakling sem kærður er til lögreglu vegna fjárdráttar

Konur í Sósíalistaflokknum hjóla í Sönnu – Hafi lýst yfir stuðningi við einstakling sem kærður er til lögreglu vegna fjárdráttar
Fréttir
Í gær

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra
Fréttir
Í gær

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Í gær

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning
Fréttir
Í gær

Alræmdasti raðmorðingi Rúmeníu laus og orðinn TikTok stjarna – Afhöfðaði mann og kastaði hausnum í stöðuvatn

Alræmdasti raðmorðingi Rúmeníu laus og orðinn TikTok stjarna – Afhöfðaði mann og kastaði hausnum í stöðuvatn
Fréttir
Í gær

Rúmlega 14 milljóna bótakrafa í Reykholtsmálinu – Margvísleg vopn í fórum sakborninga gerð upptæk

Rúmlega 14 milljóna bótakrafa í Reykholtsmálinu – Margvísleg vopn í fórum sakborninga gerð upptæk