fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fókus

Áslaug Arna með bráðsnjallt ráð til ferðalanga – „Sá strax að taskan kom aldrei með“

Fókus
Sunnudaginn 10. júlí 2022 12:52

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra  hefur notið lífsins á draumaeyjunni Tenerife undanfarna daga. Ráðherrann kom heim um helgina en lenti þá í því óláni að ferðataskan hennar skilaði sér ekki til Íslands. Slíkar uppákomur hafa verið að færast í vöxt undanfarið enda ástandið á morgun flugvellum heimsins bágborið vegna manneklu og ýmissa vandræða.

Áslaug Arna greinir frá þessu í færslu á Instagram-síðu sinni en til að bregðast við ferðatöskuleysinu þurfti hún að kaupa sér í hvelli brýnustu nauðsynjar eins og tannbursta, hárbursta og krem.

En það er ekki óheppni ráðherrans sem slík sem hefur vakið athygli heldur bráðsnjallt ráð sem hún deilir með fylgjendum sínum. Áslaug Arna merkti töskuna sína með svokölluðu airtagi, sem er lítið GPS-staðsetningartæki, sem gerði henni kleyft að fylgjast með því í símanum sínum hvar taskan var niður komin.

„Sá strax að taskan kom aldrei með og varð eftir á flugvellinum úti. Mæli með að hafa airtag á ferðatöskum,“ skrifar ráðherrann. Hún hefur því eflaust sparað sér tíma á Keflavíkurflugvelli með því að geta farið beint til starfsmanna vallarins og sagt þeim að taskan hafi ekki skilað sér.

 

Ljóst er að framundan er spennandi ferðalag töskunnar heim til Íslands. Áslaug Arna birti svo aðra færslu rétt í þessu þar sem sést að taskan er komin áleiðis til Lúxemborg og þá vonandi í framhaldinu til Íslands.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug

Myndband af grínistanum í annarlegu ástandi vekur óhug
Fókus
Fyrir 2 dögum

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk

Neitar að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Charlie Kirk
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta eru tilnefningarnar til Golden Globe

Þetta eru tilnefningarnar til Golden Globe
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan segir ógnvekjandi hversu margir nota þyngdarstjórnunarlyf – „Vita þær hvað þær eru að setja í líkama sína?“

Leikkonan segir ógnvekjandi hversu margir nota þyngdarstjórnunarlyf – „Vita þær hvað þær eru að setja í líkama sína?“