fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025
Fókus

Ragga Nagli átti eitt sitt vandræðalegasta augnablik í ræktinni í gær

Fókus
Fimmtudaginn 17. mars 2022 11:01

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir er landsþekkt sem Ragga nagli og er virk á samfélagsmiðlum undir því nafni þar sem hún skrifar um heilsu á mannamáli.

Hún segir frá mjög vandræðalegu, en fyndnu fyrir lesendur, augnabliki sem hún upplifði í gær. Færslan hefur slegið í gegn og vakið mikla kátínu meðal netverja.

„Instagram og Feisbúkk er ekki alltaf glimmer og glamúr,“ segir Ragga Nagli áður en hún útskýrir hvað hefði gerst.

„Í gær átti Naglinn eitt sitt vandræðalegasta móment í ræktinni. Hamagangur í hámarki í Crossfit brjálæði og þá byrjar tími á gólfinu svo Naglinn færir sig fyrir framan ketilbjöllurekka sem liggur alveg við endann á gólfinu og klárar djöfulganginn. Svo er dýna sótt og kviðæfingar mundaðar. Eins og oft vill verða í kviðæfingum þá vildi eiturgufa losna úr þörmum og finna sér leið út í kosmósið,“ segir hún og heldur áfram.

„Þar sem Naglinn lá alein í heiminum, eins og Palli greyið, þá var leyst úr læðingi ein góð þruma og lyktin skákaði öllum gufuhverum landsins til samans. Og auðvitað eins og örlög heimsins vilja stundum haga því, þá akkúrat á því sekúndubroti kemur hver einasti kjaftur sem var í tímanum til að sækja ketilbjöllur og allavega fimmtán manns löbbuðu lóðrétt inn í eiturskýið sem umlukti Naglann. Og litu öll sem eitt niður á Naglann… í bókstaflegri merkingu.“

Það var engin leið fyrir Röggu að koma sér úr aðstæðunum. „Því enginn annar kom til greina sem eigandi lyktarinnar en stúlkan sem lá þarna á gólfinu,“ segir hún.

Saga Röggu Nagla sýnir okkur að glansmyndin sem við sjáum á samfélagsmiðlum sé ekki veruleikinn. „Veruleikinn er oftar vindgangur og vandræðalegheit. Mistök og myglugangur. Óheppni og ófarir,“ segir hún.

Þú getur lesið pistillinn í heild sinni hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Útskýrir af hverju hann ætlar að gefa nánast allan sinn auð

Útskýrir af hverju hann ætlar að gefa nánast allan sinn auð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Simon Cowell afhjúpar villta kynlífsbeiðni – Parið var tilbúið að borga 19 milljónir

Simon Cowell afhjúpar villta kynlífsbeiðni – Parið var tilbúið að borga 19 milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

Barnastjarnan opnar sig um erfiðleika síðustu ára

Barnastjarnan opnar sig um erfiðleika síðustu ára
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókin sem Fanney segir að allir ættu að lesa – „Hún fær fólk til að átta sig á hvað það raunverulega vill út úr lífinu“

Bókin sem Fanney segir að allir ættu að lesa – „Hún fær fólk til að átta sig á hvað það raunverulega vill út úr lífinu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rihanna ólétt og frumsýndi kúluna fyrir Met Gala

Rihanna ólétt og frumsýndi kúluna fyrir Met Gala