fbpx
Þriðjudagur 02.desember 2025
Eyjan

Kallar aðstoðarmann Áslaugar „arkitekt“ ofrukkunar-hneykslis N1 Rafmagns – „Merkilegt hvernig tekist hefur að horfa algjörlega framhjá því“

Eyjan
Föstudaginn 21. janúar 2022 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Júlíusson, sem í desember var ráðinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráherra, stofnaði fyrirtækið Íslenska orkumiðlun ehf. ásamt Bjarna Ármannssyni fjárfesti, en það fyrirtæki var svo selt til Festi, eiganda N1, snemma ársi 2020. Eftir söluna gegndi Magnús svo stöðu forstöðumanns orkusviðs hjá N1 ehf.

N1 hefur síðustu daga setið undir harðri gagnrýni fyrir að rukka hærra gjald en samkvæmt birtri verðskrá af þeim viðskiptavinum sem sjálfkrafa hafa verið skráðir í viðskipti við fyrirtækið.

N1 baðst í gær afsökunar á ofrukkuninni, en þó hafði framkvæmdastjóri N1 rafmagns, Hinrik Örn Bjarnason, reynt að réttlæta framkomuna með vísan til þess að dýrara væri að taka við viðskiptum sem sjálfkrafa væru skráðir hjá fyrirtækinu samkvæmt reglum stjórnvalda um svonefnda þrautavaraleið. Allir viðskiptavinir sem hafa komið inn í gegnum þrautavarleiðina hafa greitt allt rúmlega 70 prósent hærra verð fyrir rafmagn en  það lægsta sem fyrirtækið bíður upp á samkvæmt birtri gjaldskrá, eða allt frá sumrinu 2020, þegar Magnús Júlíusson var enn forstöðumaður orkusviðs N1.

Magnús var ennfremur skipaður í starfshóp um orkustefnu árið 2018, en hann var tilnefndur í hópinn af Bjarna Benediktssyni. Magnús var einnig áður í sambandi við dóttur Bjarna, Margréti sem og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Sjá einnig: Sakar N1 um „ógeðfelldar blekkingar“ og kallar eftir hörðum viðbrögðum – „Viðskiptasiðleysi stjórnenda Festi hefur náð nýjum botni“

Atli Þór Fanndal, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, vekur athygli á þessu á Facebook:

„Það vekur alveg merkilega litla athygli að Magnús Júlíusson sem stýrði Íslenskri orkumiðlun (nú er N1 orka) sem svindlaði á neytendum og misnotaði reglur um orkusölu til þrautavara er einmitt nýráðinn aðstoðarmaður Áslaugar Örnu. Sami Magnús er einmitt fyrrverandi tengdasonur Bjarna og var skipaður í starfshóp um Orkustefnu til 2050 af fjármálaráðherra. Já og svo var hann auðvitað formaður SUS. merkilegt hvernig tekist hefur að horfa algjörlega framhjá því að arkitektinn er aðstoðarmaður ráðherra.“

Atli sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að um sé að ræða ansi áhugaverðan anga af þessu merkilega máli.

„Ég er ekki að segja að Magnús megi ekki vera aðstoðarmaður ráðherra en það verður að vekja athygli að framkvæmdastjóri þessa fyrirtækis, sem er nýráðinn aðstoðarmaður ráðherra, tók þátt í mynda orkustefnu til 2050 og var skipaður af fjármálaráðherra, en hann var einu sinni tengdasonur sama ráðherra og formaður SUS. Ráðherra mætti svara fyrir um að hvaða leyti ætlar Magnús að ráðleggja ráðherra?“

Í sama samtali furðaði Atli sig á afsökunarbeiðni N1 Rafmagns í gær.

„Þetta var eins masterclass í hvernig þú átt ekki að biðjast afsökunar. Maður verður að hrósa íslensku PR fólki fyrir að hafa samið svona furðulega afsökunarbeiðni“

Sjá einnig: Afsökunarbeiðni frá N1 – Heita endurgreiðslu

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Jólaljós fyrir femínista og Miðflokksfrændur

Nína Richter skrifar: Jólaljós fyrir femínista og Miðflokksfrændur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Björg Magnúsdóttir: Pólitík ekki fyrir þá sem vilja bara þægilega innivinnu

Björg Magnúsdóttir: Pólitík ekki fyrir þá sem vilja bara þægilega innivinnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framhaldsskólar: Guðmundur Ingi heimsótti FAS – hefur nú heimsótt alla framhaldsskóla

Framhaldsskólar: Guðmundur Ingi heimsótti FAS – hefur nú heimsótt alla framhaldsskóla
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Mikilvægasti samningur Íslandssögunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Mikilvægasti samningur Íslandssögunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Illugi agnúast yfir mynd af Kristrúnu – „Myndin sjálfkrafa einskis virði“

Illugi agnúast yfir mynd af Kristrúnu – „Myndin sjálfkrafa einskis virði“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðrún gagnrýnir að til skoðunar sé að rukka Bláa lónið og fleiri fyrir varnargarðana – „Það eru kaldar kveðjur“

Guðrún gagnrýnir að til skoðunar sé að rukka Bláa lónið og fleiri fyrir varnargarðana – „Það eru kaldar kveðjur“