fbpx
Fimmtudagur 09.maí 2024
Fókus

Frumsýna óperu sem fjallar um ævi og störf Vigdísar Finnbogadóttur

Fókus
Föstudaginn 22. október 2021 14:00

Garðar Cortes, Alexandra Chernyshova og frú Vigdís Finnbogadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óperan „Góðan daginn, frú forseti“ verður frumsýnd næstkomandi laugardag í Grafarvogskirkju. Óperan er tileinkuð frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrsta kvenforseta í heiminum og fjallar um ævi hennar og störf. Alexandra Chernyshova sópransöngkona og tónskáld hefur staðið í stöngu undanfarnar vikur að undirbúa sýninguna en að henni koma rúmlega 60 manns, stór hljómsveit, 12 einsöngvarar og tveir kórar. Alexandra sem er handhafi Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar er núna að sjá fyrir endann á sjö ára ferli með frumsýningunni. Þetta er þriðja óperan sem Alexandra semur en fyrri óperur hafa báðar unnið til alþjóðlegra verðlauna. Frá því að Alexandra fluttist til Íslands árið 2003 og fræddist þá um frú Vigdísi þá hefur hún verið aðdáandi hennar, dáðst af verkum hennar og fyrir hverju hún hefur staðið.

Garðar Cortes sem var einn af stofnendum íslensku óperunnar á sínum tíma er hljómsveitarstjóri sýningarinnar, „Tónlistin í óperunni er góð og Alexandra gefur okkur ferskan blæ með tónlistarsköpun sinni. Einnig gaman að sjá sögu frú Vigdísar í tónlistarformi sem þessu, við sjáum nýja hlið á forsetanum okkar í óperunni“.
„Það hefur verið gaman að fylgjast með æfingingum og ferlinu, að sjá óperu fæðast og límast saman. Alexandra er einstaklega lunkinn melódíusmiður þannig að ég er mjög ánægður og hrifinn“ sagði Gissur Páll sem syngur hlutverk Magnúsar Magnússonar sjónvarpsmanns og vinar Vigdísar
„þetta er óskaplega fallega tónlist og það er gaman að tónskáld skuli skrifa í þessum stíl og lög sem allir geta tileinkað sér og allir geta lært eftir að hafa heyrt sumar af þessum aríum einu sinni eða tvisvar“ sagði Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari óperunnar.

Frumsýning verður í Grafarvogskirkju laugardaginn 23. okt en um konsertuppfærslu er að ræða. Miðasala fer fram á tix.is og við innganginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024

Best klæddu stjörnurnar á Met Gala 2024
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn

Ragnhildur segir þetta vera stórkostlega ofmetið fyrir fitutap – Gerðu þetta í staðinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni

Alexandra Helga og Gylfi eiga von á öðru barni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar

Svona líta svíturnar í skemmtiferðaskipunum út – Skópússun og einkabrytar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“