fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
433Sport

Segja næstu tvo leiki geta ráðið framtíð Solskjær hjá Manchester United

Aron Guðmundsson
Miðvikudaginn 20. október 2021 12:30

Mynd: GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimildarmaður The Sun, segir að leikmenn innan leikmannahóps Manchester United, telji að Ole Gunnar Solskjærknattspyrnustjóri Manchester United, fái tvo leiki til þess að bjarga starfi sínu.

,,Sumir leikmenn Manchester United telja að Solskjær fái tvo leiki í viðtbót og ef liðinu mistakist að vinna báða leikina gæti hann verið á förum,“ segir heimildarmaðurinn í samtali við The Sun.

Leikirnir tveir sem eru framundan eru gríðarlega mikilvægir fyrir Manchester United. Sá fyrri er í kvöld gegn ítalska liðinu Atalanta í Meistaradeild Evrópu. Manchester United er með þrjú stig eftir tvo leiki í riðli sínum í Meistaradeildinni og þarf nauðsynlega á sigri að halda í kvöld.

Á sunnudaginn bíður síðan stórleikur gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. United situr í 6. sæti deildarinnar með 14 stig eftir 6 leiki, fimm stigum á eftir toppliði Chelsea.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gary Neville telur að þetta sé stærsta vandamál Chelsea

Gary Neville telur að þetta sé stærsta vandamál Chelsea
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United og Arsenal vilja bæði enska landsliðsmanninn

United og Arsenal vilja bæði enska landsliðsmanninn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sancho skráði sig á spjöld sögunnar um helgina – „Súrsætt“

Sancho skráði sig á spjöld sögunnar um helgina – „Súrsætt“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Slæm tíðindi fyrir Vestra

Slæm tíðindi fyrir Vestra