Segja má að sálfræðingurinn Hulda Jónsdóttir Tölgyes hafi sett Twitter á hliðina er hún spurðu í sakleysi sínu „Úr hvaða heli kemur fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn?“ í tísti á þriðjudaginn en færsla hennar vakti mun meiri reiði en hún reiknaði með. Hringbraut vakti athygli á málinu.
Úr hvaða helli kemur fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn?
— Hulda Tölgyes (@hulda_tolgyes) September 14, 2021
Svörin létu ekki standa á sér. Margir sem líklega ætla ekki að kjósa Sjálfstæðisflokk svöruðu að Sjálfstæðismenn kæmu úr sínum eigin bergmálshelli, ekki úr helli heldur höll, hvelfingu í Esjunni sem opnist á 4 ára fresti eða Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, svo dæmi séu tekin.
Kjósendur Sjálfstæðisflokks stigu líka fram undir færslunni, eða deildu tístinu og greindu frá því að þeir komi úr öllum áttum og allskonar bakgrunn.
Hér má sjá dæmi um nokkur svör:
„Fæddur og uppalinn á Ólafsfirði, sonur öryrkja og verkamanns, þurfti ungur að sjá fyrir sjálfum mér og greiða mínar leiðir. Það er nefnilega líka til bara andskoti ágætt fólk sem kýs xD,“
„Landabyggðarvíðfeminu hér. Þar sem samfélögbyggja á krafti fólksins. Trúin á einstaklinginn og atvinnulífið er leiðarstef í stefnu flokksins sem ég tel best fyrir byggðirnar í landinu. Er annars barn húsasmíðameistara og hönnuðar/öryrkja, erum venjulegt fólk bara.“
„Alinn upp af einstæðri móður í hjúkkunámi á Akureyri, og ömmu minni. Framsóknarfjölskylda. Myndi seint kalla þetta helli. Djöfull er þetta ömurlegt tíst hjá þér.“
„Ég er nú bara alinn upp í Breiðholtinu af ómenntuðum harðduglegum foreldrum sem hafa svo sannarlega þurft að vinna fyrir hlutunum. Það er svo mikill vilji hjá fólki að taka hlutina úr samhengi og byggja upp steríótýpur um allt.“
Meira að segja dómsmálaráðherra svaraði færslunni:
Þessi meinti hellir er ansi stór og fjölbreyttur. https://t.co/3LotHabrce
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) September 15, 2021
Alin upp i blokkaribuð i Breiðholti. Afi kommi, amma i framboði fyrir alþyðubandalagið. Amma og afi hinu megin kratar. Mamma sjukraliði. Pabbi forstöðumaður sundlaugar. Hef enga sérstaka drauma um að verða rík en dreymir um að umræða um stjórnmál komist á hærra plan en þetta https://t.co/w6bZtxdZ6B
— Hafrún Kristjans (@HabbaKriss) September 16, 2021
Undir einni deilingunni velti Hulda því fyrir sér hvers vegna Sjálfstæðismenn væru að svara tísti hennar með fjölskyldusögu sinni og störfum og benti á að tíst hennar hafi nú verið grín en ekki alvara.
„Má ekki grínast um stjórnmál? Heldur fólk í alvöru að ég sé að meina…. hvað? Að það búi í alvöru helli? Ég set þetta fram sem grín því ég er greinilega í þannig búbblu að ég þekki fá sem kjósa þennan flokk. Er þetta í alvöru rýtingur í hjartað?
Og ég var í alvöru bara ekki að biðja ykkur um ættarsögu og störf fjölskyldunnar. Fólk finnur sig knúið til að taka það fram. Hvers vegna?“
Huldu var þá svarað að Sjálfstæðismenn væru nú að reyna að lýsa „hellinum“ sem þau kæmu úr og að steríótýpu ímynd hins ríka forréttinda Sjálfstæðismanns væri röng.
Hulda tísti svo í gærkvöldi um umræðuna sem hafði gengið mun lengra en hún bjóst við.
Almáttugur. Twitter fór á hliðina því ég setti út tíst sem átti að lýsa því að ég þekki ekki (og skil ekki) fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn. Gaf í skyn að það byggi í helli. Því var tekið mjög alvarlega og bókstaflega.
Smá triggeruð yfir öllu hate-inu.
En áfram gakk.— Hulda Tölgyes (@hulda_tolgyes) September 16, 2021
Jæja. Er þetta ekki komið gott. Ég hef greinilega sært sjálfstæðisfólk djúpum sárum. Ég ætlaði mér það nú alls ekki. Ég hata ekki fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn né held ég í alvöru að þau séu öll eins. Ég hefði bara mátt vita aðeins betur en að pota í maskínuna.
— Hulda Tölgyes (@hulda_tolgyes) September 16, 2021
Fólk er í sjokki yfir að feminísk, vegan kona sem er umhugað um umhverfismál og jaðarhópa fíli ekki Sjálfstæðisflokkinn. Jeez.
— Hulda Tölgyes (@hulda_tolgyes) September 16, 2021
Umræðan varð til þess að fjöldi manns hefur tíst og spurt um hinn og þennan helli sem fólk kemur úr.
Ég kem úr hellinum þar sem það særir mig ekki persónulega að einhver hafi spurt úr hvaða helli fólk komi 😌
En ég er ekki sjálfstæðismaður.
— Atli Kisi (@AtliKisi) September 17, 2021
Úr hvaða helli kemur fólk sem heldur að hné yfir tær í hnébeygju fari illa með hnén?
— Ellen Ýr (@ellenyr) September 17, 2021
Úr hvaða helli kemur fólk sem:
1. Hefur ekki labbað upp að gosinu?
2. Hlustar á Sigga Hlö?
3. Notar Android síma?
4. Borðar ekki unnar kjötvörur?
5. Fýlar Sigurrós?
6. Er í Þjóðkirkjunni?
7. Finnst Hlölli betri en Nonni?
8. Drekkur Yogi te?
9. Elskar jólin?
10. Hlær í bíói? pic.twitter.com/UCo3NfLBjQ— Maggi Peran (@maggiperan) September 17, 2021
Hörður Ágústsson, kenndur við Macland, ákvað að spyrja líka um meintan helli Sjálfstæðismanna og fékk þar öllu hnyttnari viðbrögð en tíst Huldu. Hulda ákvað þó að vara Hörð við þar sem það væri ekki sniðugt að móðga Sjálfstæðismenn.
ÞAÐ MÁ EKKI SEGJA SVONA HÉR. Þú verður brenndur á báli. Þetta er móðgun við mig og alla mína ætt.
— Hulda Tölgyes (@hulda_tolgyes) September 17, 2021