fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fréttir

Halldór segir að nú sé runnin upp örlagastund í Covid-19 faraldrinum – „Algjörlega óásættanlegasta niðurstaðan“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 22. júlí 2021 17:00

Myndin er samsett. Mynd af Halldóri/Daníel

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Sóttvarnalæknir er búinn að útbúa minnisblað um aðgerðir innanlands og ríkisstjórnin fundar á morgun. Mín tilfinning er að þetta sé einn krítískasti tíminn í baráttunni við veiruna, þar sem upplýsingagjöf hefur verið misvísandi og mikið óþol komið í marga.“

Svona hefst pistill sem Halldór Auðar Svansson, frambjóðandi í þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavík suður, en pistillinn birtist á Vísi undir yfirskriftinni Örlagastund í sóttvörnum. Pistillinn er skrifaður í kjölfar upplýsinga um mögulegar hertari aðgerðir vegna mikillar aukningar á smitum síðustu daga.

„Væntingarnar voru orðnar þannig að það myndi ekki þurfa að grípa til aðgerða aftur, sem er að mörgu leyti skiljanlegt. Það hefur vissulega gengið mjög vel að bólusetja hérlendis og það hlýtur að breyta sviðsmyndum töluvert, í ljósi þess að bólusetningar virðast draga mjög úr líkum á því að sýkt fólk veikist alvarlega,“ segir Halldór. „Sérfræðingar okkar sem hafa stýrt ferðinni hingað til virðast hins vegar meta stöðuna þannig að það stefni engu að síður í óásættanlegan fórnarkostnað bráðlega ef ekki er stigið aðeins á bremsuna.“

Halldór bendir á að það þurfi að fara vandlega yfir þetta allt saman og skapa svo sameiginlegan og skýran skilning innan ríkisstjórnarinnar á vegferðinni sem fram undan er. „Svo þarf að leggja allt kapp á að miðla henni til fólks með skýrum hætti. Hvað þarf að gera og af hverju, hversu lengi það stendur yfir og hvað er hægt að gera til að bæta stöðuna, sem sagt aukabóluefni, bólusetja yngri aldurshópa, og svo framvegis.“

„Algjörlega óásættanlegasta niðurstaðan“

„Föllum ekki í gryfjuna,“ segir Halldór svo í tilefni þess að stutt sé í kosningar. „Freistingin til að fara að skapa sér sérstöðu og slá sér upp á henni er meiri en nokkru sinni áður – en ég vona að það fólk sem ber þessa ábyrgð forðist að falla í þá gryfju. Því miður gefur það ekki góð fyrirheit að sú frekar einfalda og nokkuð skiljanlega aðgerð fyrr í vikunni, að skikka bólusett fólk sem og óbólusett til að framvísa neikvæðri skimunarniðurstöðu við landamærin, olli ein og sér miklum titringi á stjórnarheimilinu og það er eins og það hafi komið mjög flatt upp á sum þar að þurfa að standa í þessu,“ segir hann.

Að lokum segist Halldór vona að dagurinn í dag gefi andrými til þess að hægt sé að gera betur. „Algjörlega óásættanlegasta niðurstaðan væri það sem okkur hefur verið boðið upp á undanfarið þessa viku, eitthvað hálfkák um að styðja við aðgerðirnar en samt eiginlega ekki, og nennuleysi þeirra sem bera þessa ábyrgð gagnvart því að setja sig almennilega inn í hvað er í gangi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

David endar á Ítalíu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“

Guðjón skaut á strandveiðar í skugga banaslyss – „Ertu hálfviti?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær 45 daga fyrir að ráðast á barnsmóður sína með stól og lemja hana í hnakkann

Fær 45 daga fyrir að ráðast á barnsmóður sína með stól og lemja hana í hnakkann