Það vakti athygli þegar Eyþór birtist í sjónvarpssetti Omega. Oddviti Sjálfstæðismanna var sakaður um að vera þar eingöngu til að ná sér í atkvæði ofsatrúarfólks en Eyþór gaf þá skýringu að hann hefði sett sér þá reglu að ræða við alla fjölmiðla. Þá hefur Eyþór lýst yfir áhuga á að stofna tvö ný hverfi. Eitt í Örfirisey og annað við Keldur. DV stingur upp á fimm nýjum hverfum og þannig geti Eyþór halað inn atkvæði frá öllum trúarhópum og Reykjavík yrði hans.
Hverfið í Örfirisey gæti heitið Umskurðarey. Hver myndi ekki vilja eiga heima í Forhúðarstræti í Umskurðarey?
Keldur yrðu Golgatahverfi eða Edenshvarf.
Hverfið umhverfis Reynisvatn gæti heitið Litla-Medína. Tilvalinn staðsetning fyrir víninnflytjandann Mekka.
Byggðin í Úlfarsárdal fengi nafnið Búddabær. Stóra gatan gæti heitið Ganges og leitt upp að Konfúsíusarbrunni.
Trúleysingjar fá Geldinganes, sem myndi heita Hindurvitnagrið.