Þrettán ára stúlka sem lést af völdum slímseigjusjúkdóms (e. cystic fibrosis) gefur fingurinn frá gröfinni og foreldrar hennar vilja að hún haldi því áfram. Mirror greinir frá.
Kayla Carle, frá Skotlandi, lét lífið í febrúar 2020 eftir hetjulega baráttu við slímseigjusjúkdóm. Á legsteinn hennar stendur að hún hafi verið ástkær dóttir, systir, barnabarn, frænka og vinkona. Það er einnig mynd af Kaylu á legsteininum og á myndinni er hún að gefa fingurinn.
Fyrir viku síðan fékk Rachael, móðir Kaylu, símtal frá borgarstjórn Aberdeen í Skotlandi sem tjáði henni að einhver hafi móðgast vegna myndarinnar.
„Það kvartaði einhver undan myndinni á legstein dóttur minnar og sagði að myndin væri dónaleg og óviðeigandi,“ sagði Rachael, 32 ára, við Mirror.
„Þeir sögðu að þeir vildu að myndin yrði tekin niður. Myndin sýnir hvers konar karakter hún var. Þetta var hún. Þetta var ein af uppáhalds myndunum hennar. Hún var stríðin og ákveðin.“
Borgarstjórnin bauðst til að skipta út myndinni, frítt. En Rachael afþakkaði það og vill að myndin sé nákvæmlega þar sem hún er.
„Ég hef enga samúð fyrir manneskjuna sem móðgaðist. Hún þarf ekki að horfa á myndina. Ég missti 13 ára dóttur mína. Ég valdi þessa mynd af ástæðu, þetta er hún,“ segir Rachael.