fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Síðasti séns að næla sér í æsandi jóladagatöl

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 19. október 2020 09:00

Kristín og Vilhjálmur hjá Hermosa vilja einskorða úrvalið við fyrsta flokks vörur sem hafa sýnt sig og sannað

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hermosa er ein stærsta og farsælasta netverslun með kynlífstæki á Íslandi í dag. Upphafið má rekja til þess að eigendurnir, Vilhjálmur Þór Gunnarsson og Kristín Björg Hrólfsdóttir fluttu inn kynlífstækjadagatöl fyrir ein jólin. 

„Dagatölin slógu heldur betur í gegn enda vorum við að bjóða upp á verð sem hafði alls ekki sést hér á landi. Við komum líka strax auga á mikið ósamræmi í verði á kynlífstækjum almennt. Það var oft hátt í 50% verðálagning hjá íslenskum heildsölum ofan á það sem varan kostar á til dæmis Amazon með flutningi, sköttum og öllu því sem að það kostar einstakling að flytja inn eina vöru. Því vatt þetta fljótt upp á sig og síðan þá höfum við haft það að leiðarljósi að bjóða upp á fyrsta flokks kynlífstæki á frábæru verði. Í ár fundum við algerlega sturluð kynlífstækjadagatöl sem eiga heldur betur eftir að slá í gegn í desember og lengi eftir það,“ segir Vilhjálmur.

Dagatölin eru ótrúlega vegleg og innihalda ekki bara vörur frá einum framleiðanda. Myndir/aðsendar.

Forsölu lýkur á föstudaginn

Í september hófst forsala á nýjum og spennandi kynlífstækjadagatölum hjá Hermosa og henni lýkur núna á föstudaginn 23. október. „Það er ekki mikið magn til sem við eigum eftir að selja. Þetta á eftir að klárast mjög fljótt og því er ráðlagt að þeir sem hafa áhuga á að panta dagatölin að gera það sem fyrst. Í fyrra fundum við ekkert dagatal sem stóðst okkar kröfur, en núna í ár höfum við landað tveimur frábærum dagatölum sem henta allskonar pörum. Þetta eru ótrúlega vegleg dagatöl og það sem gerir þau frábrugðin flestum öðrum er að þau innihalda ekki bara vörur frá einum framleiðanda. Hægt er að velja um Premium kynlífstækjadagatal og svo Classic dagatal.“

Sogtæki hafa verið að tröllríða kynlífstækjamarkaðnum undanfarið og þar er Womanizer eitt af vinsælustu merkjunum.

Úrvalsvörur í svefnherbergið

Premium dagatölin eru sérlega vegleg með frábært úrval af hágæða kynlífstækjum. Dagatalið kostar 39.990 kr. en verðmæti varanna er um 150.000 kr. „Þetta eru 28 vörur sem þýðir að í sumum gluggum er fleiri en ein vara. Þá er meðalverðið á hverri vöru fyrir sig 1.428 kr. sem er lægra verð en á ódýrustu vörunni í dagatalinu. Við erum að tala um Womanizer vörur, paratæki, alvöru leðurvörur, múffur, titrara, sleipiefni og allskonar unaðstæki til þess að gera desemberskammdegið að skemmtilegasta tíma ársins.“

Þetta fjarstýrða egg frá Easy Toys passar vel í nærbuxurnar. Gefðu valdið frá þér og treystu makanum til þess að kveikja ekki á egginu á óviðeigandi stöðum. passa vel í nærbuxurnar. Makinn fær svo fjarstýringuna og getur kveikt á egginu hvar og hvenær sem er. Gefðu frá þér stjórnina, þú munt ekki sjá eftir því.

Sígildar unaðsvörur

Hitt dagatalið er alls ekki síðra. Dagatalið er á 24.990 kr. en verðmæti varanna er um 80.000 kr. „Vörurnar í þessu eru mjög góðar og sígildar en vörumerkin eru minna þekkt. Við höfum þó verið að selja frábærar vörur frá þessum aðilum og við vitum að þetta eru flott vörumerki. Þarna eru kegal perlur, titrarar, dildóar, sogtæki, bdsm dót, typpahringur og paratæki. Það verður enginn svikinn af þessum munúðarpakka.“

Fallegur paratitrari frá We-Vibe sem að mun krydda vel upp á kynlífið í desember. Tækið virkar í flestum stellingum og veitir báðum aðilum unað.

Samdægurs sendingarþjónusta

„Við vinnum sífellt að því að bæta þjónustuna hvar sem hægt er, en viðskiptavinir okkar hafa kunnað vel að meta góða verðið, fríu heimsendinguna og hvað vefsíðan er þægileg og einföld í notkun. En okkar markmið hefur alltaf verið að einskorða úrvalið við fyrsta flokks vörur. Eins og við segjum oft, þá nennir enginn að skoða 300 dildóa í leit að þeim eina rétta. Við erum búin að leggjast í rannsóknarvinnuna til að einfalda þér lífið.

Það nýjasta hjá okkur er að nú bjóðum við upp á samdægurs heimsendingu, sækja á N1 á leið heim úr vinnu eða í vöruhús. Ef pantað er fyrir hádegi þá geturðu fengið vöruna heimsenda samdægurs. Þetta er í raun engu flóknara en að panta pizzu. Þú færð sms þegar varan fer í bílinn og svo annað þegar það eru 15-20 mínútur í að hún kemur til þín. Það þarf því ekki að bíða heima í heilan dag eftir heimsendingu. Ef fólk vill sækja þá er hægt að sækja sendingar frá kl. 17 og fram á kvöld á allar N1 stöðvar. Þessi kostur hentar mörgum sem vilja kippa pakkanum með sér heim úr vinnu og vilja ekki þurfa að vera heima. Einnig er hægt að sækja sjálfur í vöruhúsið fyrir kl. 17:00 á daginn.

Einnig höfum við bætt við lifandi spjalli á síðunni okkar. Þá geta viðskiptavinir náð í okkur á næstum hvaða tíma sem er sólarhringsins. Við erum nánast alltaf við því við getum hvort heldur er svarað í tölvunni eða símanum.“

Kíktu við í hermosa.is og skoðaðu úrvalið.

Pantaðu kynlífstækjadagatal hér.

Facebook: Hermosa.is

Instagram: hermosaisland

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum