fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Gunnar smíðakennari segir kulnun ekki vera sjúkdóm – „Við nennum ekkert að hlusta á né lesa svona djöfuls rugl“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 14. september 2020 12:28

Mynd: Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í kringum mig sé ég manneskjur í bugun. Kulnun, burn out, kvíða, hraða og ráðaleysi. Manneskjur í fullri vinnu með menntun á bakinu detta í veikindarleyfi hægri vinstri með vottorð sér til stuðnings.“

Svona hefst pistill sem Gunnar Dan Wiium skrifar en pistillinn birtist á Vísi. „Í örvæntingu leita þessar manneskjur úræða í því formi sem við lítum á sem okkar ytri raunveru. Formið gefur ástandinu nafn og við skýlum okkur þar eftir bakvið spjaldið sem stimplað er. Við kennum vinnuálagi um, skilnuðum, covid eða bara einfaldlega að við kannski höfum óvart eignast of mörg börn,“ segir hann.

Gunnar veltir því fyrir sér hver ástæðan sé fyrir þessu. „Því þetta virðist einstaklingsbundið. Sumir virðast missa stjórnina á meðan aðrir virðast halda henni, og þá meina ég ekki að haldið sé fast heldur laflaust í tauminn með bros á vör,“ segir Gunnar. „Svarið liggur náttúrulega í nálgun og getu hvers og eins til að upplifa það sem kemur, það sem er. Getan er svo ástand innan vitundar hvers og eins. Þarna stoppa flestir, við nennum ekkert að hlusta á né lesa svona djöfulls rugl, innan vitundar hvað?!? Hvað er maðurinn að tala um!

„Við verðum að þvinga okkur“

Gunnar segir að í nútímanum sé margt sem kallar á fólk. „Gríðarlegur hraði í samfélagi hvað varðar magn og ferðatíma upplýsinga. Ofan á þessar veldisaukningu í upplýsingarflæði leggst ofan á boðefnasvindlið sem svo margir eru orðnir háðir í einhverju formi, sem eru samfélagsmiðlar, fréttamiðlar, tölvuleikir og svo framvegis. Við segjum söguna um okkur í gegnum gerviheim sem hylur raunina eins og mara pensluð með micróskópískum dropa af dópamini,“ segir hann.

„Athygli okkar eða athyglisgáfa er sprengd og sjáum við það best í börnunum okkar sem mörg hver samkvæmt hinum og þessum könnunum eiga erfiðara og erfiðara að lesa til dæmis. Við þurfum að sporna á móti þessu ástandi sem er orðið. Við gerum það með að endurtengja okkur við það sem er, náttúru, andardrátt. Hugmyndin um það eitt og sér er næs en það er svo ekki nóg. Við þurfum kerfisbundið að fara inn í raunverulega iðkun. Iðkun sem snýr að kyrjun með innhverfri íhugun. Við verðum að þvinga okkur með ákvörðun og miklum viljastyrk í iðkun sem leiðréttir þessa vitundarskekkju.

Mantran verður bolurinn sem við göngum eftir, bolurinn sem ég sný tilbaka til er greinin er farin að svigna undan fótum mér. Mantran, sem getur verið andardráttur, orð eða setning síendurtekin í hljóði eða upphátt, er sú sem endurstillir getu manneskjunar til að gefa gaum.“

Segir kulnun ekki vera sjúkdóm

Þá lýsir Gunnar hvernig allt líf verður að vera. „Allar eindir verða að njóta sín án skörunar annara einda nema að um beinan, raunverulegan tilgang skörunar sé um að ræða,“ segir Gunnar og fullyrðir að orð eins og kulnun og „burn out“ séu bara orð, ekki fyrirbæri eða sjúkdómar. „Bara orð sem lýsa vitundarástandi. Vitundarástandi sem skapast af of mikilli hugsun, of miklu stöffi. Vitundar ástand sem ekki er leiðrétt með auknum aðferðum, flokkunum á þeim eindum sem eru. Vitundarástandi sem ekki lagast við að tala og tala og tala. Vitundarástand sem ekki er lagað með lyfjum nema sem tímabundin lausn undan einkennum“

Gunnar botnar pistilinn með því að segja frá því eina sem hann telur að geti lagað þetta. „Það eina sem réttir okkur af er kerfisbundin mantra sem og uppgjör fortíðar í kjölfarið. Leggjum frá okkur síman, leggjum frá okkur taumhald hvítra hnúa og sleppum tökunum. Kreppa-sleppa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí