fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fréttir

Huggulegur helgarrúntur til Hveragerðis -Kíktu á þessa staði

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 7. júní 2020 10:30

Hveragerði er algjör konfektmoli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hveragerði er dásamlegur staður og tilvalið fyrir þá sem vilja komast út fyrir höfuðborgina og njóta smábæjarstemmingarinnar án þess að keyra langt. Aðalgatan, Breiðamörk, er skemmtileg gata og þar er að finna ýmsa áhugaverða veitingastaði og kaffihús. Ef stefnan er tekin á bíltúr til Hveragerðis máttu ekki láta þessa gullmola fram hjá þér fara.

Mynd: Heilsustofnunin í Hveragerði er dásamleg.

HEILSUSTOFNUNIN HVERAGERÐI
Heilsustofnunin er dásamlegur staður sem allir verða að prófa að heimsækja. Hádegismaturinn þar er stórkostlegur og þá sérstaklega á sunnudögum. Salatbarinn er sá besti hérlendis og hnetusósan algjört dúndur. Hver sem er getur komið og keypt sér mat í matstofunni. Hægt er að sjá matseðilinn á hnlf.is. Oft er hægt að kaupa fiskibollur og annað hollmeti til að taka með heim. Einnig er sundlaug á staðnum og hægt að bóka sig í leirbað sem er einstaklega afslappandi og gott fyrir húðina. Lokað er fyrir almenning um sinn, bæði í Matstofu Jónasar og í Baðhúsið en hægt er að fylgjast með á heilsustofnun.is hvenær aftur verður opnað fyrir almenning.

 

Smurbrauðið með kjúklingasalati er virkilega gott.

MATKRÁIN
Smurbrauðsstaðurinn Matkráin er staðsettur við aðalgötuna í Hveragerði. Eigendur staðarins eru engir aðrir en Jakob Jakobsson og eiginmaður hans Guðmundur Guðjónsson sem stofnuðu og ráku lengi Jómfrúna. Staðurinn er ákaflega vinsæll en nú þegar er gjarnan röð út á götu um helgar. Matkráin er smekklega innréttuð að skandinavískum hætti og matseðillinn virkilega girnilegur auk þess sem þar fæst gott úrval af kökum. Kjúklingasalatssmurbrauðið og djúpsteikti camembertinn þykja áberandi góðir réttir, að ógleymdri purusteikinni.

 

Mynd: Ölverk

ÖLVERK
Pitsustaðurinn Ölverk hefur verið ákaflega vinsæll allt frá því að hann var opnaður fyrir þremur árum. Staðurinn er ákaflega frumlegur og hefur meðal annars boðið upp á kívípitsu og pretsel með bjórídýfu. Á Ölverki er að finna sérbruggaðan bjór en misjafnt er hvaða tegundir eru í boði hverju sinni. Hægt er að bóka skoðunar- og smakkferð um brugghúsið og jafnvel enda á pitsuveislu fyrir litlar 5.200 krónur. Lágmarksfjöldi til að bóka slíka smakkferð er 10 manns.

 

Myndir: Dalakaffi

REYKJADALUR OG DALAKAFFI
Rétt ofan við Hveragerði er Reykjadalur. Fallegur dalur með náttúrulaug og er það vel þess virði að leggja á sig göngu til þess að smella sér ofan í heita laugina og njóta guðsgrænnar náttúrunnar. Best er að keyra inn að Dalakaffi og leggja þar og ganga upp Rjúpnabrekkur og áfram upp í Reykjadalinn. Tilvalið er að stoppa svo á kaffihúsinu í bakaleiðinni og njóta góðra veitinga.

 

Rósakaffi er skemmtilegur viðkomustaður.

RÓSAKAFFI
Kaffihús, ísbúð og blómabúð eru í gróðurhúsi við Breiðamörk. Þar má gjarnan finna falleg og framandi pottablóm á góðu verði. Á Rósakaffi fæst einnig sykurlaus ís úr vél.

 

Mynd: Flóra

FLÓRA
Gróðrarstöðin Flóra, sem hét áður Garðyrkjustöð Ingibjargar, er ákaflega ánægjulegur viðkomustaður. Þar má kaupa bæði sumarblóm, stofublóm og fjölærar plöntur auk trjáa. Verðið er yfirleitt nokkuð lægra en í verslunum í höfuðborginni og starfsfólkið er einstaklega liðlegt.

 

HÓTEL ÖRK
Hótel Örk opnaði nýja 78 herbergja álmu árið 2018. Hótelið hefur gengist undir afbragðs yfirhalningu og býður meðal annars upp á pakkaferðir með fjórhjólaferð innifalinni. Einnig er sundlaug á hótelinu og veitingastaðurinn Hver.

 

Dökkfjólublátt tóbakshorn. Sannkallað augnayndi. Mynd: TM

GRÆNAMÖRK
Gróðrarstöðin Grænamörk selur ekki beint til gesta og gangandi en hefur sett upp lítinn bás fyrir utan gróðurhúsið þar sem viðskiptavinir geta nálgast sumarblóm og frægu jarðarberjaplönturnar þeirra og nýtínd jarðarber. Einnig hafa fengist þar svört tóbakshorn sem eru engu lík!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Húsleitir og handtökur vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

Húsleitir og handtökur vegna skipulagðrar glæpastarfsemi
Fréttir
Í gær

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn mælir með snjóboltaaðferðinni þegar kemur að skuldum heimilisins – „Hefur reynst vel til þess fallin að halda fólki við efnið“

Björn mælir með snjóboltaaðferðinni þegar kemur að skuldum heimilisins – „Hefur reynst vel til þess fallin að halda fólki við efnið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um

Fölsuðu bréf svo kennarar í Hofsstaðaskóla gætu fengið styrk til Frakklandsferðar – Kenna undirverktaka um
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bæjarfulltrúi kærði bæjarstjórn Kópavogs til kærunefndar – Gerði í raun athugasemd við sína eigin skipan í ráð

Bæjarfulltrúi kærði bæjarstjórn Kópavogs til kærunefndar – Gerði í raun athugasemd við sína eigin skipan í ráð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tíu ára bandarísk stúlka lést úr hjartaáfalli í hitabylgjunni í Frakklandi

Tíu ára bandarísk stúlka lést úr hjartaáfalli í hitabylgjunni í Frakklandi