fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Pressan

Japanir ræða um 26 þúsund króna ferðaávísun

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. maí 2020 12:51

Ljósmynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ferðaþjónustan íslenska er ekki sú eina sem berst í bökkum um þessar mundir og ýmsar hugmyndir á sveimi um hvernig hægt er að endurvekja þennan mikilvæga hlekk í efnahagslífi heimsins. Japanir kljást um þessar mundir við sambærilegar aðstæður og á Íslandi en 99,9% af veltu ferðaþjónustu landsins hefur gufað upp síðan Covid-19 faraldurinn hófst.

Japönsk stjórnvöld tilkynntu svo í gær að þau séu að skoða að eyrnamerkja jafngildi rúmlega 2.500 milljarða íslenskra króna í beinar niðurgreiðslur á ferðamennsku innanlands. Það jafngildir um 20.000 japönskum yenum á hvert mannsbarn, eða um 26.000 íslenskum krónum. Þessum styrk er svo ætlað til þess að eyða á ferðalögum sínum innanlands. Kerfið virðist við fyrstu sýn svipa mikið til þess íslenska og spurning hvort horft hafi verið til Íslands við hugmyndasmíðina.

Eins og frægt er áttu Japanir að halda Ólympíuleikana sumarið 2020 og því höggið af Covid-19 þar eystra ekki síst þungt fyrir þjóðarímynd og stolt þjóðarinnar sem hefur undirbúið sig undir þetta sumar í áratug. Þeir hafa nú aflétt hættustigi í almannavörum landsins eftir um 850 dauðsföll og 16.500 tilfelli. Í landinu búa 126 milljónir manna. Það má því segja að Japanir hafi sloppið lygileg vel undan kórónuveirufaraldrinum, sérstaklega ef litið er til þess að uppistaða erlendra ferðamanna landsins eru Kínverjar og samskipti Kínverja og Japana gríðarlega mikil.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni

Það er kominn tími til að eyða Chrome úr tölvunni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fundu 1.800 ára gömul grafhýsi full af fjársjóðum

Fundu 1.800 ára gömul grafhýsi full af fjársjóðum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Settu tennisbolta í þvottavélina – Ástæðan er algjör snilld

Settu tennisbolta í þvottavélina – Ástæðan er algjör snilld