fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fókus

Mynd dagsins: Þegar Víðir Reynisson var pönkari?

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 8. apríl 2020 09:56

Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur þegar komið fram að þríeykinu í framvarðasveit sóttvarnaráðs er ýmislegt til lista lagt. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur til skamms tíma verið í hljómsveit sem leikur ábreiður af gömlum bítlalögum. En Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn á líka tónlistarferil að baki. Á níunda áratugnum var hann í pönkhljómsveitinni Holskeflu – eða hvað?

Vefur Borgarbókasafnsins greinir frá og birti meðfylgjandi mynd. Þar segir:

„Við tiltekt í Tón- og mynddeild í Grófinni kom þessi fordæmalausa vínylplata í leitirnar! Hvern hefði grunað að sjálfur Víðir Reynisson yfirlögregluþjónnhafi verið í pönkhljómsveit snemma á níunda áratugnum? Söfnin eru því miður enn lokuð, en við gátum ekki stillt okkur og færðum plötuna yfir á stafrænt form, enda verulegt fágæti hér á ferð.“

Víðir er lengst til hægri á plötumslaginu. Eða hvað? Borgarbókasafnið greindi frá því gær, reyndar ansi mörgum dögum eftir 1. apríl að fréttin var í raun gabb sem gleymdist að leiðrétta. Það skyldi þó engan undra að Víðir hefði leynda hæfileika en pönksöngur er það þó ekki.

Athugasemd: Frétt Borgarbókasafnsins var aprílgabb.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
Fókus
Fyrir 2 dögum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir
Fókus
Fyrir 3 dögum

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því

Er kallinn sjaldan í kynlífsstuði? Þetta gætu verið ástæðurnar fyrir því
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“