fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fréttir

Egill kryfur fund Bjarna og spáir í spilin: Verður ríkisstjórnin Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins?

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 15. september 2017 18:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Einhverjir höfðu gert því skóna að Bjarni Benediktsson myndi segja af sér eða hrökklast frá völdum í Sjálfstæðisflokknum eftir atburðarás síðustu daga. En svo er ekki. Hann mætti á blaðamannafund, sem var afar vel skipulagður út frá sjónarmiði almannatengsla, hann mun eiga sviðið í öllum fréttatímum kvöldsins. Og hann boðar að haldnar verði kosningar í nóvember – þar sem hann mun leiða Sjálfstæðisflokkinn enn á ný. Það er líka svo skringilegt að flokkurinn hefur ekki annað formannsefni. Það er er enginn annar í þessum sögufræga flokki. Bjarni er óskoraður leiðtogi hvað sem á gengur. Á sinn hátt er það dálítið dapurt.“

Þannig hefst pistill eftir Egil Helgason stjórnanda Silfur Egils á Eyjunni. Þar kryfur Egill nýjustu vendingar og fer yfir blaðamannafund sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hélt í Valhöll. Þegar Bjarni hafði lokið máli sínu tók við dynjandi lófaklapp Sjálfstæðismanna sem sátu heldur hnípnir á fremsta bekk að hlusta á foringja sinn.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Egill segir að Sjálfstæðisflokkurinn muni í kosningum leggja áherslu á stöðugleika og vara við ístöðulausum smáflokkum. En í ræðu sinni skaut hann á Bjarta framtíð. Egill segir Sjálfstæðisflokkinn skipulagða maskínu sem geti látið á sér kveða með litlum fyrirvara og hafi nægt fjármagn til að reka sína kosningabaráttu. Egill segir:

„Gleymum ekki að hálfu ári eftir kosningar í nóvember eru bæjar- og sveitastjórnakosningar. Ein kenningin er sú að Björt framtíð hafi ekki síst viljað komast úr ríkisstjórninni vegna sveitarstjórnarfólksins sem var mjög farið að ókyrrast.

Það er spurning hvernig aðrir flokkar eru búnir undir kosningar. Sumir þeirra geta stillt upp nánast óbreyttum listum frá kosningunum í október í fyrra. Það er spurning hvort eitthvað af Samfylkingarþingmönnunum sem duttu út vilji reyna aftur, en kannski væri betra fyrir Samfylkinguna að mæta með nýjan hóp.“

Björt framtíð og Viðreisn

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Um Bjarta framtíð og Viðreisn segir Egill:

„Björt framtíð mætti með mikið af sveitarstjórnarfólki sínu á listum í síðustu kosningum – það verður varla mikil eftirspurn eftir sætum á lista þar. Brotthlaupið úr ríkisstjórninni nær varla að vera lífakkeri fyrir þann flokk. Eftir stjórnarsetuna mun Viðreisn þurfa að skýra vel út hvaða erindi flokkurinn á – innan úr þeim herbúðum heyrast þær raddir að Benedikt Jóhannesson sé ekki alveg heppilegur sem formaður og aðaltalsmaður.“

Lilja senuþjófurinn og Flokkur fólksins með fylgissveiflu

„Sigurður Ingi Jónsson mun leiða Framsóknarflokkinn í kosningum í annað sinn, kannski áttu fáir von á því, en Lilja Alfreðsdóttir er senuþjófurinn sem líklegt er að taki við flokknum,“ segir Egill.

Um Flokk fólksins segir Egill að hann hljóti að bjóða fram í öllum kjördæmum eftir uppsveiflu í skoðanakönnunum en fylgið hefur vaxið jafnt og þétt. Samkvæmt nýjustu tíðindum myndi Flokkur fólksins fá sjö þingmenn. Egill segir:

„Það er jafnvel hugsanlegt að það verði Flokkur fólksins sem gefi tóninn í kosningunum. Þátt fyrir fögur fyrirheit í stjórnmálaumræðum hefur lítið farið fyrir stórátökum í þágu aldraðra, öryrkja og sjúkra. Einhvern veginn þagna slíkar raddir eftir kosningar. En Flokkur fólksins getur tekið fylgi frá öllum flokkum sem munu sjá sig knúða til að bregðast við þeim – jafnvel í innflytjendamálunum líka.“

Hverjir taka við?

Mynd: Brynja

Í frétt Eyjunnar er greint frá því að Bjarni fari á fund forseta á morgun til að óska eftir þingrofi.

„Guðni verður væntanlega við þeirri ósk, enda virðast ekki vera neinir möguleikar á að mynda stjórn í stöðunni,“ segir Egill: „Enginn virðist vera að reyna það. Það verður þá starfsstjórn undir forystu Bjarna fram að kosningum. Hverjir taka við eftir þær?“

Egill bendir á að vinstri flokkarnir hafi verið nálægt því að ná völdum fyrir ári síðan, en litlu hafi þó munað.

„Tekst honum það núna? Eða verður Framsókn aftur lykilstöðu og ríkisstjórnin kannski Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins?“

Pistil Egils má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt