fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Bannar notkun svartolíu innan landhelgi Íslands – „Einar ströngustu kröfur í heimi“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 6. desember 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skrifað undir reglugerð um hertar kröfur varðandi eldsneyti í íslenskri landhelgi, sem í raun bannar notkun svartolíu innan hennar. Bannið er meðal annars liður í að framfylgja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem og stjórnarsáttmála.

Svartolía er meðal annars notuð í skipasiglingum og mengar meira en annað eldsneyti. Þegar hún brennur losnar mikið af sóti úti í andrúmsloftið. Svartolía er í raun samheiti yfir þungar og seigar olíur sem eru með ákveðna eiginleika og geta innihaldið hátt hlutfall brennisteins.

„Með þeim breytingum sem ég hef nú skrifað undir verður Ísland með einar ströngustu kröfur í heimi hvað varðar svartolíu. Sambærilegar kröfur munu gilda um brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti í íslenskri landhelgi og nú gilda á svokölluðum ECA-svæðum í Eystrasalti og Norðursjó þar sem kröfurnar eru strangastar. Þar er um ákveðin svæði að ræða en hér á landi látum við reglurnar ná til allrar landhelginnar,“

segir Guðmundur Ingi.

Skipamengun hefur verið í umræðunni undanfarið, en eitt skemmtiferðaskip er sagt menga á við þrefaldan bílaflota Íslands á einum sólarhring þegar kemur að olíubrennslu og sótögnum og við brennisteinssvifryk.

Þá er losun köfnunarefnis eins skemmtiferðaskips á sólarhring sagt á við losun 10 þúsund bifreiða.

Betri loftgæði

Um er að ræða breytingu á reglugerð nr. 124/2015 um brennisteinsinnihald í tilteknu fljótandi eldsneyti. Auk tilætlaðs ávinnings fyrir loftslagið er breytingunni ætlað að stuðla að betri loftgæðum við strendur Íslands og hvetja til notkunar á loftslagsvænni orkugjöfum á skipum.
Með breytingunum verður leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti á Íslandi einungis 0,1% innan landhelginnar og á innsævi, það er einnig í fjörðum og flóum. Leyfilegt innihald er í dag 3,5%.

Breytingarnar taka gildi 1. janúar n.k. og sama dag taka þær breytingar gildi að innan mengunarlögsögunnar mun leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti lækka niður í 0,5%. Það er í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt viðauka VI í MARPOL-samningnum sem Ísland fullgilti í febrúar 2018. 

Til samanburðar var brennisteinsinnihald í svartolíu sem var markaðssett hér á landi árið 2017 á bilinu 0,64-1,94% en meðaltalið á heimsvísu samkvæmt gögnum frá Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) var 2,59%.

Breytingarnar hafa í för með sér að notkun svartolíu í landhelgi Íslands er útilokuð, nema skip noti viðurkenndar aðferðir til að draga úr losun brennisteinsdíoxíðs.

Í reglugerðinni er veitt heimild til 1. september 2020, til að klára ónýttar birgðir af skipaeldsneyti með hærra brennisteinsinnihald sem eru til staðar í brennsluolíutönkum skipa við gildisstöku reglugerðarinnar. Skilyrði fyrir því er þó að útgerð skips tilkynni til Umhverfisstofnunar fyrir 1. janúar 2020 um hvert það skip sem nýta skal heimild fyrir og hvert uppsafnað magn skipaeldsneytis á olíutönkum skipanna er.

Drög að reglugerðinni voru kynnt fyrr á þessu ári og haft var samráð við hagsmunaaðila og aðra við setningu hennar.

Spurt og svarað um svartolíu og reglugerðarbreytingu sem bannar notkun hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“