fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Þórey og Magnús ástfangin – Svona eiga þau saman

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 23. nóvember 2019 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórey Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi hjá Capacent, og Magnús Orri Schram, fyrrverandi alþingismaður, eru nýtt par, en þau hafa bæði verið mjög áberandi í þjóðlífinu undanfarin ár. Ástin er ný af nálinni en DV lék forvitni á að vita hvernig skötuhjúin eiga saman þegar kemur að stjörnumerkjunum.

Magnús Orri er naut en Þórey er ljón. Tveir afskaplega þrjóskir einstaklingar koma hér saman í ástarsambandi, sem getur orðið ansi hreint farsælt. Af hverju? Jú, því þessir tveir sterku einstaklingar vita upp á hár hvernig á að fóðra egó hins aðilans.

Í raun eru þarfir nauts og ljóns mjög svipaðar; bæði merki vilja vera elskuð og að það sé hugsað um þau. Ljónið elskar hrós og að vera dáð og dýrkað og nautið þarf einnig mikið af athygli. Sem elskhugar eru þau trygglynd og svíkja ekki fólkið sem stendur þeim næst.

Bæði merki elska þægindi og lúxus og eru einnig afar kappsöm. Þau elska að vera í stjórnunarstöðum og þessi þörf fyrir að stjórna og hafa rétt fyrir sér hjá þeim báðum getur orðið til þess að babb komi í bátinn í sambandinu. Þau þurfa því að leggja sig fram við að skilja þarfir hvort annars og kunna að miðla málum. Rifrildi um hver á að stjórna geta skemmt allt og því þurfa þau að tala vel saman og átta sig á hlutverkum sínum innan sambandsins frá fyrsta degi.

Magnús Orri
Fæddur: 23. apríl 1972
Naut

-áreiðanlegur
-þolinmóður
-hagsýnn
-ábyrgur
-þrjóskur
-eigingjarn

Þórey
Fædd: 18. ágúst 1972
Ljón

-skapandi
-ástríðufull
-gjafmild
-hlý
-þrjósk
-hrokafull

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.