Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samráðsnefnd um fiskeldi. Nefndin er skipuð á grundvelli laga sem Alþingi samþykkti nýverið en henni er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna fiskeldis.
Nefndinni ber að taka til umfjöllunar mál sem snerta fiskeldi, meðal annars að leggja mat á forsendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunnar byggist á. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá umhverfis- og auðlindarráðuneytinu, Landsambandi veiðifélaga, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Hafrannsóknarstofnun og Sambandi íslenskra sveitafélaga. Þá skipar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra formann nefndarinnar.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir mikilvægt að hafa samráð um uppbyggingu fiskeldis:
„Að baki þeirri ákvörðun að setja á fót samráðsnefnd um fiskeldi hvílir sú meginhugsun að stuðla að nauðsynlegu samráði um uppbyggingu greinarinnar. Að vísindin, hagsmunaaðilar og stjórnvöld eigi sameiginlegan vettvang til skoðanaskipta um þá mikilvægu uppbyggingu sem nú á sér stað og fyrirhuguð er. Með þessari nefnd erum við jafnframt að fylgja þeirri ráðgjöf okkar helstu nágrannalanda, sem eru komin mun lengra en við Íslendingar í að byggja upp öflugt fiskeldi, að það sé lykilatriði að stuðla að náinni samvinnu þeirra lykilþátta sem koma að uppbyggingu greinarinnar, þ.e. stjórnvalda, fiskeldisfyrirtækja, náttúrunnar og vísinda. Ég tel augljóst að við getum látið þessa lykilþætti vinna betur saman og ég bind vonir við að samráðsnefndin sé mikilvægt skref í þá veru.“
Nefndin er skipuð til fjögurra ára og er þannig skipuð:
Aðalmenn:
Varamenn: