Í frétt Vísis kemur fram að Ragnheiður og Gísli séu búin að vera að hittast í nokkurn tíma og að þau virðist ná vel saman. Einnig kemur fram að þau séu bæði húmoristar og mikið fyrir íþróttir.
Gísli Páll er fyrrverandi knattspyrnumaður og spilaði síðast með félaginu Kórdrengir en áður hefur hann spilað fyrir Þór og Breiðablik.
Ragnheiður er mikil körfuboltakona en á sínum tíma spilaði hún meðal annars með Breiðabliki, Keflavík og Haukum. Hún var áður gift landsliðsmanninum Ragnari Sigurðssyni.