fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Pressan

Eltihrellirinn þurfti ekki meira en endurkastið í ljósmynd poppstjörnunnar

Ritstjórn Pressunnar
Föstudaginn 11. október 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhugnanlegt mál er nú til meðferðar fyrir dómstólum sem varðar eltihrelli sem braut kynferðislega á fórnarlambi sínu.

Það var þann 1. september síðastliðinn að Ena Matsuoka, 21 árs liðskona J-pop hljómsveitarinnar Tenshitsukinukeniyomi, varð fyrir fólskulegri árás á heimili sínu.

Árásarmaðurinn var 26 ára karlmaður, Hibiki Sato, en hann beitti býsna útsmoginni aðferð til að komast að því var poppstjarnan átti heima.

Ena hafði birt sjálfsmynd á samfélagsmiðlum og ef súmmað var nógu mikið inn á myndina, nánar tiltekið á augu poppstjörnunnar, mátti greina lestarstöð eða strætóstoppistöð beint fyrir utan heimili hennar.

Sato þessi notaði Google Street View til að bera myndina saman við myndir úr kerfi Google og þannig gat hann fundið út nákvæmlega hvar hún átti heima. Þann 1. september síðastliðinn fór hann að heimili hennar, beið eftir að hún kom heim áður en hann réðst til atlögu og nauðgaði henni.

Lögreglu tókst að hafa hendur í hári Sato á þriðjudag eftir að hafa lagst yfir upptökur úr öryggismyndavélum. Við yfirheyrslur játaði hann að hafa rannsakað endurkast og speglanir á ljósmyndum sem Ena hafði birt á samfélagsmiðlum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bjargaði lífi fjögurra barna og mannsins sem hótaði að drepa þau

Bjargaði lífi fjögurra barna og mannsins sem hótaði að drepa þau
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þingkona missti stjórn á sér á flugvelli og urðaði yfir starfsmenn

Þingkona missti stjórn á sér á flugvelli og urðaði yfir starfsmenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Alræmdur fjöldamorðingi dó í fangelsi á sunnudag

Alræmdur fjöldamorðingi dó í fangelsi á sunnudag
Pressan
Fyrir 4 dögum

Viðtal Trump við 60 Minutes veldur fjaðrafoki – Fólk hefur áhyggjur af heilsu hans og minni

Viðtal Trump við 60 Minutes veldur fjaðrafoki – Fólk hefur áhyggjur af heilsu hans og minni
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi fréttakona grunuð um voðaverk á hrekkjavökunni

Fyrrverandi fréttakona grunuð um voðaverk á hrekkjavökunni
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ótrúlegt sakamál í Bretlandi – Bæjarfulltrúi ákærður fyrir að kúga þingmann

Ótrúlegt sakamál í Bretlandi – Bæjarfulltrúi ákærður fyrir að kúga þingmann