fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025

Kennarar refsuðu henni fyrir að vera með stór brjóst: „Ég var látin sitja eftir fyrir að knúsa bróður minn“

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 12. september 2019 20:30

Ashley James.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpskonan og plötusnúðurinn Ashley James segir að hún hafi verið látin sitja eftir í skóla vegna brjóstastærðar sinnar.

Hún opnar sig um atvikið í hlaðvarpinu White Wine Question Time með Kate Thornton. Fabulous Digital greinir frá.

„Ég var látin sitja eftir því ég knúsaði bróður minn fyrir utan skólann. Kennararnir sögðu: „Mun fólkið í bænum vita að hann er bróðir þinn og hvað munu þau hugsa þegar það er ljóshærð stelpa með stór brjóst að knúsast í stráki fyrir utan?““ Segir Ashley.

https://www.instagram.com/p/B13YZZyhVAT/

„Það var alltaf efast um mitt siðferði, meira að segja kennararnir. Það var alltaf komið fram við mig eins og ég myndi vera með litla siðferðiskennd því ég væri með stór brjóst og allt. Það var alltaf látið mér líða eins og ég ætti að skammast mín.“

Ashley segir að brjóst hennar stækkuðu mikið þegar hún var fjórtán ára og þá byrjuðu strákarnir í skólanum að segja ljóta hluti við hana.

„Strákarnir komu til mín og sögðu alla þessa ógeðslegu hluti við mig, en í stað þess að kennararnir leiðréttu hegðun drengjanna, þá sögðu þeir við mig að ég mætti ekki vera í „þessum“ fötum. En vinkonur mínar máttu klæðast þessum nákvæmlega sömu fötum,“ segir Ashley.

https://www.instagram.com/p/B2RYdNUhbL2/

„Fyrir fjórtán ára stelpu er þetta rosalega ruglandi því ég var alveg: „Bíddu af hverju má ég ekki?“ Áður en ég var kynferðisleg (e. sexual) þá komu kennararnir fram við mig eins og ég væri kynferðislega virk og mér finnst það klikkun. Þegar ég horfi til baka þá sé ég að það var verið að refsa mér fyrir líkama minn.“

Ashley segir að þetta hafi haft mikil áhrif á hana og henni fannst hún þurfa að fara eftir öðrum reglum en aðrar stelpur.

„Ég byrjaði að hugsa að ef mig langaði að fólk tæki mig alvarlega þá þyrfti ég að hylja líkama minn og ekki mála mig. Ég notaði gleraugu og ég þurfti ekki einu sinni gleraugu. Hversu fáránlegt er það? Ég gerði það bara því ég vildi að ég yrði tekin alvarlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Kennara vikið frá störfum á Eyrarbakka vegna meints ofbeldis gegn einhverfum nemanda – Móðir kallar eftir úrbótum

Kennara vikið frá störfum á Eyrarbakka vegna meints ofbeldis gegn einhverfum nemanda – Móðir kallar eftir úrbótum
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Ráð fyrrverandi flugfreyju – Gerðu alltaf þetta þegar þú ferð á hótel

Ráð fyrrverandi flugfreyju – Gerðu alltaf þetta þegar þú ferð á hótel
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Blaðamaður Morgunblaðsins lýsir ósætti við að horft sé framhjá Gylfa – Bent á fyrri ummæli Arnars í ljósi fjarveru hans

Blaðamaður Morgunblaðsins lýsir ósætti við að horft sé framhjá Gylfa – Bent á fyrri ummæli Arnars í ljósi fjarveru hans
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Sögulegt bann tekur gildi á Maldíveyjum

Sögulegt bann tekur gildi á Maldíveyjum
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þurfa að greiða háa upphæð eftir að brot á siglingareglum ollu næstum stórslysi skammt frá Reykjavíkurhöfn

Þurfa að greiða háa upphæð eftir að brot á siglingareglum ollu næstum stórslysi skammt frá Reykjavíkurhöfn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“

Mynd: Hátt settur maður í bobba – „Hvað viltu fá fyrir að sofa hjá?“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Vonarstjarna Chelsea kvartar undan kulda í London – Stjórinn varar hann við því sem er á leiðinni

Vonarstjarna Chelsea kvartar undan kulda í London – Stjórinn varar hann við því sem er á leiðinni
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fullorðinn maður reyndi linnulaust við 6 stúlkur undir 15 ára aldri í marga mánuði – „Ég er alls ekki barnaperri“

Fullorðinn maður reyndi linnulaust við 6 stúlkur undir 15 ára aldri í marga mánuði – „Ég er alls ekki barnaperri“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.