Svo virðist sem raunveruleikaþáttastjarnan Kylie Jenner sé að lifa sínu besta lífi en hún er stödd á Turks- og Caicoseyjunum í Karíbahafi ásamt fríðu föruneyti.
Jenner er að vanda iðinn við kolann þegar kemur að því að birta myndir af sér innan samfélagsmiðla sem flestar eiga það sameiginlegt að vera í djarfari kantinum.
Nú síðast atti hún kappi við ofurfyrirsætuna Naomi Campbell sem klæddist samskonar sundfatnaði en um er að ræða sægrænt bikini úr smiðju Chanel. Það sem vekur þó enn meiri eftirtekt er að klæðin eru tuttugu og fimm ára gömul og þar að leiðandi eldri en eigandinn. Jenner sem er sögð geta endurselt varninginn fyrir að því sem nemur 1,690 bandarískra dollara.
https://www.instagram.com/p/Bz8jXd7HqFV/?utm_source=ig_embed