Hulda B Waage kraftlyftingakona Íslands skorar á glansmyndina. Hún tekur myndir af konum í alls konar stellingum og endurgerir myndirnar. Hulda var komin með nóg af því að bera sig stöðugt saman við aðra og líða illa með sjálfa sig. Hún ákvað að deila myndunum með fylgjendum sínum á Instagram og hefur hlotið mikið lof fyrir að sýna hugrekki og leggja sitt af mörkum fyrir jákvæða líkamsímynd.
Af hverju ákvaðstu að byrja að þessu?
„Ég byrjaði að taka þessar myndir fyrir fyrsta Evrópumeistaramótið mitt fyrir þremur árum. Ég hef alltaf verið óörugg með útlit mitt og með lélega sjálfsmynd. Kröfurnar eru líka oft mjög óraunhæfar. Bæði frá okkur sjálfum og frá umhverfinu. Ég var komin á þann stað að ég var stöðugt að bera mig saman við aðra og ég vissi að ég þyrfti að vinna í mínum málum,“ segir Hulda.
Hvaðan kom hugmyndin?
„Hugmyndin var sú að ég myndi bókstaflega, í orðsins fyllstu, bera mig saman við aðra. Í rauninni að gera grín af mínum eigin kröfum til sjálfs míns og gera grín að kröfum samfélagsins. Þetta átti algjörlega og er algjörlega að mínu mati fyndið en á sama tíma að hjálpar þetta mér að sættast við sjálfa mig,“ segir Hulda.
Hvernig viðbrögð hefurðu fengið?
„Ég hef hingað til bara fengið góð viðbrögð. Bæði hafa einstaklingar komið til mín og hrósað mér. Bæði bara fyrir að vera fyndin og gera slæma daga betri og fyrir að hafa hugrekkið. Skilaboðin sem ég hef fengið hafa líka verið yndisleg. Einstaklingar eins og ég hafa tekið verkefnið fyrir og eru á sömu braut og ég að sættast við sjálfa sig. Ég hef líka fengið hrós fyrir útlit mitt, sem er dásamlegt, en það er ekki það sem ég sækist eftir,“ segir Hulda.
Hvernig hefur þetta hjálpað þér?
„Það er eiginlega ótrúlegt hvað þetta hefur gefið mér. Ég kann betur að meta sjálfa mig. Mér finnst ég vera skemmtilegri og fallegri. Hljómar kannski einkennilega en það er bara svo gott að kunna meta sjálfa sig óháð því að fá samþykki frá öðrum. Bara ég samþykki mig sjálf,“ segir Hulda.