,,Já, þetta kemur vel út,“ sagði Laxakvíslarinn Björn K Rúnarsson leigutaki í Vatnsdal, er hann fletti fyrsta eintakinu af Sportveiðiblaðinu sem var að koma út stútfullt af efni eða 108 síður. En Björn er á forsíðunni.
Þeir Björn K. Rúnarsson og Jógvan Hansen eru í stærstu viðtölunum í blaðinu en auk þess er risa grein um Laxá á Ásum skrifuð af Oddi Hjaltasyni. Viðtal við Henrik Andersen leigutaka Ytri Rangár, Þór Nilsen velur sér flugur í Þingvallavatn, Haddi Geirs 75 ára og meira góðgæti fyrir veiðimenn á öllum aldri.