Hægt að fá sjö einbýlishús úti á landi fyrir andvirði stúdíóíbúðar í miðborginni – Húsnæðisverð gæti hækkað um 30 prósent á næstu þremur árum – „Íbúðalagerinn“ að tæmast
Húsnæðisverð á Íslandi hefur hækkað sífellt hraðar undanfarna mánuði sem skýrist af bættri eignastöðu heimila, kaupmáttaraukningu og vexti í innlendri eftirspurn. Samkvæmt nýrri spá Greiningardeildar Arion banka gæti húsnæðisverð hækkað um allt að 30 prósent á næstu þremur árum. Samkvæmt nýútkominni skýrslu er „íbúðarlagerinn“ að tæmast. Með öðrum orðum hefur fjöldi íbúða sem eru til sölu á landinu ekki verið jafn lítill og nú í að minnsta kosti 11 ár. Á meðan húsnæðisverð utan höfuðborgarsvæðisins hefur hækkað um 20 prósent síðastliðna 12 mánuði er oft og tíðum sláandi munur á fermetraverði og sem dæmi nefna að hægt væri að kaupa bæði parhús og 5 herbergja íbúð á landsbyggðinni á meðan sama upphæð dugir fyrir örsmárri einstaklingsíbúð í Þingholtunum í Reykjavík.
Hægt væri að kaupa samtals sjö einbýlishús víðs vegar á landsbyggðinni fyrir andvirði 45 fermetra stúdíóbúðar í Þingholtunum. Þá mætti einnig festa kaup á tveimur einbýlishúsum fyrir 7,6 milljónir sem er álíka mikið og útborgun í 35 milljóna króna íbúð á höfuðborgarsvæðinu.
Við Strandgötu á Eskifirði er til sölu 37,7 fermetra einbýlishús á 3,8 milljónir.Annars staðar á Eskifirði, við Tungustíg, er til sölu 33,7 fermetra einbýlishús fyrir sama verð.Við Bakkagötu á Kópaskeri má finna 210 fermetra einbýlishús á þremur hæðum á 4,5 milljónir.84,8 fermetra einbýlishús við Miðvang í Bakkafirði, 5,4 milljónir.Þá er til sölu 157 fermetra einbýlishús við Aðalstræti á Þingeyri og er kaupverð 5,5 milljónir.
Fjölgun ferðamanna hefur aukið eftirspurn eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, sem leiðir til hærra verðs. Telur Greiningardeildin að þróun á húsnæðismarkaði næstu misseri muni að miklu leyti ráðast beint og óbeint af framgangi ferðaþjónustunnar.
Um 79 prósent landsmanna býr á höfuðborgarsvæðinu og í fjórum stærstu bæjum landsins, akranesi, Akureyri, Árborg og Reykjanesbæ.Samkvæmt Hagsjá Landsbankans frá því í september síðastliðnum var fermetraverð fasteigna á Akureyri um 76 prósent af verðinu í Reykjavík á öðrum ársfjórðungi 2016 og hefur lengi verið á því bili. Samkvæmt sömu mælistiku var fermetraverð í hinum bæjunum töluvert lægra, á bilinu 56 til 63 prósent af verðinu í Reykjavík.
Þessar tölur sýna að verðþróun á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu er í stórum dráttum ekki frábrugðinn því sem gerist í stærri bæjum úti á landi. Eftir sem áður er mikill munur á fermetraverði á milli þessara staða.
Þá kemur fram að jafnframt hafi húsnæðisverð utan höfuðborgarsvæðisins hækkað um 20 prósent síðastliðna 12 mánuði en sú hækkun er að mestu leyti drifin áfram af mikilli hækkun húsnæðisverðs í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.
Eitt dýrasta einbýlishús landsins er við Skildinganes 54 í Reykjavík. Um er að ræða 456 fermetra, 6 herbergja einbýlishús á sjávarlóð í Skerjafirðinum. Kaupverðið er 189 milljónir en í húsinu er 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. „Einstök eign í sérflokki“ segir í auglýsingu á fasteignavef Vísis.
Hér er tekið gróft dæmi um hjón á höfuðborgarsvæðinu sem eiga fyrir útborgun í 35 milljóna króna íbúð. Hjónin eiga tvö börn og leita að íbúð með fjórum svefnherbergjum. Á höfuðborgarsvæðinu hrökkva 35 milljónir skammt ef íbúðin á að hafa nóg pláss fyrir fjóra fjölskyldumeðlimi en ódýrasta íbúðin með fjórum svefnherbergjum kostar 36,9 milljónir. Sætti fjölskyldan sig við íbúð með þremur svefnherbergjum eru einhverjir kostir í boði.
Við Rofabæ í Árbænum er til sölu 91,1 fermetra íbúð með 3 svefnherbergjum á 34,9 milljónir. Á sama verði má finna 50 fermetra, tveggja svefnherbergja risíbúð í Vesturbænum. Þá er til sölu 64 fermetra íbúð í fjórbýlishúsi á Vitastíg, með tveimur svefnherbergjum, á 34 milljónir.
Samkvæmt skýrslu Global House Price Index sem kom út í desember síðastliðnum hefur húsnæðisverð hækkað hvað hraðast í heiminum á Íslandi. Greiningardeild Arion banka spáir því að fasteignaverð í fjölbýli muni halda áfram að hækka hraðar en verð á sérbýli, að minnsta kosti til skamms tíma. Hrein eign í húsnæði er lægri hjá þeim sem eru yngri en 55 ára nú en hún var fyrir áratug og er því talið að áfram verði meiri eftirpurn eftir litlum íbúðum í fjölbýli frekar en sérbýli.
Um leið og komið er út fyrir höfuðborgarsvæðið eru ákjósanlegri kostir í boði. Við Keflavíkurveg á Hellissandi má til að mynda kaupa nýlegt, rúmlega 200 fermetra einbýlishús á 35 milljónir. Við Laufskála á Hellu er hægt að festa kaup á 240 fermetra einbýlishúsi með 5 svefnherbergjum á 34,9 milljónir.
Við Brautarland í Fossvogi má finna dæmi um fasteign til sölu þar sem fermetraverðið er með því hærra sem sést. Um er að ræða 184 fermetra einbýlishús og er kaupverðið 120 milljónir króna. Þetta kemur fram á fasteignavef mbl.is. Fermetraverðið er því tæpar 650 þúsund krónur. Það sem vekur athygli er að húsið er byggt árið 1947.
Þá væri einnig hægt að festa kaup á rúmlega 200 fermetra einbýlishúsi í Stykkishólmi, með fjórum svefnherbergjum á 34,9 milljónir og einbýlishús við Bakkagötu á Kópaskeri sem kostar aðeins tæp 13 prósent af kaupverðinu sem fjölskyldan ræður við, eða 4,5 milljónir.
Hér er um að ræða valdar eignir af Fasteignavef Vísis þann 23 febrúar síðastliðinn og ber því að geta þess að listinn er ekki tæmandi
Póstnúmer/bæjarfélag | Stærð/tegund/gata | Ásett verð | Fermetraverð |
---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | |||
101 Reykjavík | 88,5 fm.4ja herb. ósamþykkt kjallaraíbúð á Klapparstíg. 3 svefnherbergi | 35 millj. | 395 þús. |
105 Reykjavík | 73,7 fm. 3ja herb. íbúð á Hrefnugötu. 1 svefnherbergi | 34,9 millj. | 473 þús. |
107 Reykjavík | 61,3 fm. 2ja herb. íbúð á Kaplaskjólsvegi. 1 svefnherbergi | 32,9 millj. | 536 þús. |
108 Reykjavík | 62,5 fm. 2ja herb.íbúð að Hæðargarði. 1 svefnherbergi | 32,9 millj. | 395 þús. |
109 Reykjavík | 105,2 fm. 4ja herb íbúð að Grýtubakka. 3 svefnherbergi | 34,9 millj. | 331 þús. |
112 Reykjavík | 78,1 fm. 3ja herb íbúð í Mosarima. 2 svefnherbergi | 34,9 millj. | 446 þús. |
200 Kópavogur | 72 fm. 3ja herb íbúð á Marbakkabraut .2 svefnherbergi | 34,9 millj. | 484 þús. |
220 Hafnarfjörður | 95,5fm. 3ja herb íbúð að Kelduhvammi. 2 svefnherbergi | 365 þús. | |
Suðurnes | |||
230 Reykjanesbær | 158,4 fm. 4ja herb. einbýlshús að Klapparstíg. 3 svefnherbergi | 33,5 millj. | 211 þús. |
Vesturland | |||
300 Akranes | 97,5 fm. 3ja herb. íbúð að Smáraflöt. 2 svefnherbergi | 34,5 millj. | 353 þús. |
350 Grundarfjörður | 232 fm. 7 herb. einbýlishús á Grundargötu.5 svefnherbergi | 35 millj. | 150 þús. |
Norðurland | |||
603 Akureyri 190,2 fm. 6 herb. einbýlishús í Lyngholti. 3 svefnherbergi | 34,9 millj. | 183 þús. | |
640 Húsavík | 175,1 fm. 6 herb. einbýlishús að Ásgarðsvegi. 4 svefnherbergi | 34,9 millj. | 199 þús. |
Vestfirðir | |||
400 Ísafjörður | 265,6 fm.7 herb. parhús á Skólagötu. 4 svefnherbergi | 25,6 millj. | 96 þús. |
400 Ísafjörður | 139,5 fm.5 herb. íbúð að Pólgötu . 4 svefnherbergi | 9 millj. | 64 þús. |
Austurland | |||
700 Egilsstaðir | 226,3 fm. 5 herb. einbýlishús í Brekkuseli. 4 svefnherbergi | 34,9 millj. | 154 þús. |
730 Reyðarfjörður | 208,2 fm. 6 herb. einbýlishús á Heiðarvegi. 5 svefnherbergi | 32 millj. | 153 þús. |
Suðurland | |||
900 Vestmannaeyjar | 236,6 fm. 6 herb. einbýlishús við Ásaveg. 6 svefnherbergi | 35 millj. | 148 þús. |
800 Selfoss | 141,4fm. 3ja herb.parhús á Borgarbraut. 4 svefnherbergi | 34,9 millj. | 246 þús. |
810 Hveragerði | 122,6 fm 4ja herb. raðhús að Smyrlaheiði. 3 svefnherbergi | 34,9 millj. | 284 þús. |