fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Björn Bjarnason: „Af orðunum skulið þið þekkja þá, má segja um fréttamenn ríkisútvarpsins“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 13. mars 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, fjallar á heimasíðu sinni um úrskurð Mannréttindadómstólsins í gær, nánar tiltekið fréttaflutning RÚV af málinu, en Björn hefur lengi haft horn í síðu stofnunarinnar, líkt og svo margir tengdir Sjálfstæðisflokknum. Undrun sætir að þeir horfi og hlusti enn á fréttir þaðan, þar sem allt úr þeirri átt virðist ómögulegt.

Björn segir um fréttirnar í gær:

„Af ávöxtunum skulið þið þekkja þá, auglýstu Silli og Valdi á sínum tíma, öruggur um að þeir hefðu alltaf góða vöru á boðstólum. Af orðunum skulið þið þekkja þá, má segja um fréttamenn ríkisútvarpsins. Þetta kom í hugann í gær þegar hlustað var á fyrstu fréttir af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í ríkisútvarpinu í landsréttarmálinu. Þar var því strax slegið föstu klukkan 09.00 þegar fyrsta frétt var flutt að íslenska ríkið hefði verið dæmt til að greiða 15.000 evrur í bætur. Þarna var þó um að ræða greiðslu á hluta málskostnaðarkröfu stefnanda. Dómurinn hafnaði kröfu hans um bætur.

Þegar þessi villa í fréttinni lá fyrir hlupu fréttamenn ríkisútvarpsins út á Facebook til að segja að þetta skipti bara engu máli. Það væri nú ekki neinn munur á að fá greiddar bætur eða hluta málskostnaðar, að gera veður út af slíku væri að beina athygli að aukaatriði. Á þessu tvennu er þó grundvallarmunur. Ástæðan fyrir að fréttamennirnir vildu tala villuna niður var að dómur um bætur gerði hlut dómsmálaráðherra verri en ella hefði verið.“

Svívirðilegt brot

Björn gerir mikið úr þýðingu RÚV á orðinu „flagrant“ sem notað var í dómnum um brot dómsmálaráðherra. RÚV þýddi það sem „svívirðilegt“ sem Björn telur að sé röng orðanotkun:

„Á þann veg kaus fréttamaðurinn að þýða enska orðið flagrant en á íslensku lagamáli er talað um „skýlaust“ eða „augljóst“ brot í tilvikum sem þessum. Orðaval fréttastofunnar miðaði hins vegar enn að því að gera hlut dómsmálaráðherra sem verstan. Einhverjum í Efstaleiti kann meira að segja að hafa blöskrað þessi öfgafulla orðnotkun, henni var hætt eftir að fréttakona gerði tilraun til að setja dómsmálaráðherra út af laginu með frekju í beinni útsendingu.“

Þess má geta að samkvæmt orðabók er enska orðið „flagrant“ bæði þýtt sem „svívirðilegt“, „óskammfeilið“, „smánarlegt“ og „alvarlegt“ og því ljóst að ekki er hægt að saka RÚV um gildishlaðin vinnubrögð við þýðinguna.

Björn segir hinsvegar að RÚV taki með þessu afstöðu:

„Við svo búið var augljóst að hlusta yrði á allar frásagnir ríkisútvarpsins af þessum dómi MDE með fyrirvara. Enn einu sinni hefðu fréttamenn ákveðið að halda með þeim sem vilja að dómarar ráði sjálfir hverjir sitja í dómaraembættum og vega að þeim ráðherra sem „vogar“ sér að hafa aðra skoðun og vinna að því að bola honum úr embætti. Þetta er í sjálfu sér ekki flókið.“

Askja Pandóru

Þegar Björn greinir dóminn sjálfan tekur hann undir sjónarmið síns fyrrverandi formanns, Davíðs Oddssonar, um að askja Pandóru hafi verið opnuð:

„Niðurstaða meirihluta MDE í landsréttarmálinu tekur ekki aðeins mið af því að dómararnir telja forseta Íslands, alþingi, hæstarétt og ráðherra hafa brotið lög heldur einnig hinu að þeir tala til stjórnvalda í öðrum aðildarríkjum Evrópuráðsins. Þeir opna að dómi minnihluta réttarins Pandóru-öskju án þess að hafa minnstu hugmynd um hvað upp úr henni kemur. Augljóst er hvað kom upp úr henni í Efstaleiti.“

Traustið tapað

Björn vill meina að þessi eini dómur hafi litað störf Mannréttindadómstólsins alls:

„Íslenska ríkið hlýtur að áfrýja málinu til æðra dómstigs í Strassborg. Það er ekki unnt að eiga hlut að því að þessi askja sé opin. Þá hlýtur íslenska ríkið að beita sér með öðrum fyrir því að dómurum við MDE sé gert skylt að túlka lög en ekki setja þau. MDE hefur tapað trausti vegna frjálslegra lögskýringa dómaranna þar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“