fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Hvað ætlar þú að gera í kvöld – Tíu góðar þáttaseríur á Netflix

Lady.is
Mánudaginn 11. febrúar 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Netflix er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég er búin að vera með áskrift í nokkur ár og ég elska það. Það vill svo heppilega til að ég á eina ótrúlega góða vinkonu sem deilir oft með mér góðum þáttum til að horfa á.
Mig langar að deila með ykkur mínum topp 10 þáttum þessa stundina á Netflix.

1. Marcella

Ef þú ert ekki búin að sjá þessa þætti þarftu að græja það núna!
Breskir lögguþættir, ég lofa þú munt ekki geta tekið augun af þessum þáttum.

2. YOU

Það tók mig nú bara einn laugardag til að klára þessa seríu.
Mér til varnar að þá var ég veik og hafði ekkert annað að gera en að horfa á Netflix.
Mér fannst pínu skrítið að sjá „Dan Humphrey“ leika svona sjúkan gaur, en vá þessir þættir komu mér gríðarlega á óvart.

3. Baby

Baby eru ítalskir þættir og þeir komu mér rosalega á óvart.
Unglingadrama af bestu sort.
Ég vona svo heitt að það komi sería 2.

4. Élite

Ég byrjaði að horfa á þessa þætti fyrir algjörri tilviljun.
Þetta eru spænskir „unglinga“ spennuþættir.
Ég var límd við skjáinn allan tímann og hlakkaði alltaf til að komast heim og horfa á þá.
Fór næstum að gráta þegar þeir kláruðust.

5. La Mante

Ég er mikið að vinna með evrópska þætti.
La Mante eru franskir spennuþættir og eru eiginlega bara bestu spennuþættir sem ég hef séð.
Ég var ekki með miklar væntingar þegar ég byrjaði á þeim en maður lifandi hvað þetta eru góðir þættir.

6. Yummy mummies

Ég ætlaði nú fyrst ekki að horfa á þetta en vá hvað ég er fegin að ég gerði það.
Þessir þættir eru svo ótrúlega fyndnir og skemmtilegir.
Snýst allt um Versace, Burberry og Push presents ( fæðingargjafir).

7. The assassination of Gianni Versace

Þessir þættir voru mjög góðir.
Fannst þeir pínu ruglingslegir á köflum því það var farið svo mikið fram og til baka en á endanum fannst mér þetta geggjað.
Þetta eru sannsögulegir þættir um morðið á Gianni Versace og blandast fleiri morð í söguna því sá sem myrti Versace myrti fleiri menn líka.
Mjög flottir leikarar, best fannst mér Penélope Cruz sem lék Donatellu, systir Versace.

8. Daredevil

Það tók mig nokkra þætti til að elska þessa.
Eftir svona 4 þætti þá gat ég ekki hætt að horfa.
Vanalega finnst mér Marvel þættir og myndir ekki skemmtilegar en þessir þættir eru must watch.
Blindur maður sem berst á móti illum mönnum, þvílíkt action í þessum þáttum.
Þurfti stundum að halda fyrir augun því þetta varð svo brutal!
Mæli með þessum.

9. Dynasty

Ef ykkur vantar drama í lífið þá eru þessir þættir toppurinn.
Það gerist allt í þessum þáttum.
Það kemur nýr þáttur í hverri viku og ég bíð alltaf jafn spennt!

10. Safe

Þessir eru í svo miklu uppáhaldi hjá mér.
Það er bara ein sería en hún er svo spennandi að þú klárar hana strax.
Ég er svo mikið að vona að það komi önnur sería.
Þetta fjallar um mann sem heitir Tom, dóttir hans hverfur einn daginn og hann leitar af henni og finnur leyndarmál sem tengjast fólki í bænum.

Færslan er skrifuð af Jórunni Maríu Sally og birtist upphaflega á síðunni Lady.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum

Áhugaverð niðurstaða nýrrar rannsóknar á háhyrningum
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

England: Liverpool mistókst að vinna West Ham

England: Liverpool mistókst að vinna West Ham
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Mjög óöruggur í starfi og fær engin skilaboð – ,,Höfum ekkert talað saman síðustu mánuði“

Mjög óöruggur í starfi og fær engin skilaboð – ,,Höfum ekkert talað saman síðustu mánuði“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir útspil Hermanns hafa komið sér á óvart – „Mér fannst það sérstakt“

Segir útspil Hermanns hafa komið sér á óvart – „Mér fannst það sérstakt“
Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Verðtryggingin dregur úr virkni stýrivaxta Seðlabankans

Snorri Jakobsson: Verðtryggingin dregur úr virkni stýrivaxta Seðlabankans
Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson

Jákvæð niðurstaða nýrrar meðferðar við Parkinson

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.