Eiríkur Rögnvaldsson, professor emeritus í íslenskri málfræði, hefur tekið saman þrjár mögulegar samsæriskenningar um Klaustursmálið. Segir hann á Facebook að nú keppist Miðflokksmenn við að telja sjálfum sér og öðrum trú um að Klausturupptökurnar hafi verið vandlega undirbúnar og skipulagðar.
Svo virðist sem þingmenn Miðflokksins telji að um einhverskonar samsæri sé að baki upptökum Báru Halldórsdóttur á Klaustur Downtown Bar í lok nóvember í fyrra. Á upptökunum má heyra fjóra þingmenn Miðflokksins og tvo þingmenn, sem þá voru í Flokki fólksins, tala um ýmsar samstarfskonur sínar á þingi sem „kuntur“ og „tíkur“, ásamt fleiru. Þingmenn Miðflokksins fóru þess á leit við dómstóla að fara í gagnaöflun og vitnaleiðslur, en því var hafnað á tveimur dómsstigum. Var meðal annars farið á leit við Dómkirkjuna að afhenda upptökur úr öryggismyndavélum, en engar slíkar eru til staðar. Ekki liggur fyrir hvað þingmennirnir telja að hafi átt sér stað annað en að Bára hafi einfaldlega átt leið hjá og farið að taka upp samtal þeirra.
Bergþór Ólason sagði meðal annars þetta í Kastljósviðtali í síðustu viku:
„Það skiptir máli því að þarna eru þessar upptökur og við teljum að þær segi töluvert aðra sögu…“
Hvaða sögu, að þetta hafi verið eitthvað samsæri?
„Við teljum ólíklegt að miðað við þær upplýsingar sem hafa borist til okkar…“
Hvaða upplýsingar?
„Ég get auðvitað ekkert farið í, því að málið er í farvegi annars vegar hjá Persónuvernd, þessari siðanefnd og hins vegar hjá dómstólum með öðrum hætti síðar.“
„Gefum því nú séns og athugum hverjir möguleikarnir eru,“ segir Eiríkur og birtir eftirfarandi samsæriskenningar:
1) Kona úti í bæ sem er fyrir tilviljun stödd á Klaustri ber kennsl á fyrrverandi forsætisráðherra og áttar sig á að hann er í hópi þingmanna, heyrir hann og samferðafólk hans viðhafa orðfæri sem henni blöskrar og setur upptöku af stað í gamla Samsung-símanum sínum.
2) Steingrímur J. gerir út sérlegan njósnara vopnaðan gömlum Samsung-síma sem fylgir Miðflokksmönnum eins og skugginn hvert sem þeir fara, í þeirri fullvissu að einhvern tíma komi að því að þeir fari að svívirða kollega sína – svona eins og allir gera einhvern tíma, að sögn Sigmundar.
3) Útsendari Steingríms er fyrir tilviljun á rölti á Austurvelli, sér Miðflokksmenn fara inn á Klaustur og hugsar með sér: „Þessir munu örugglega skandalísera. Best að elta þá inn og taka upp það sem þeir segja – og reyna í leiðinni að lauma ólyfjan í glasið hjá einhverjum þeirra.“
Spyr hann svo að lokum:
„Hvað af þessu er nú líklegast – og skást fyrir Miðflokksmenn, ef út í það er farið?“
Nokkur umræða skapaðist um málið í kjölfarið. Þar mætti meðal annars stuðningsmaður Miðflokksmanna sem sagði talsmátann óboðlegan en það réttlæti ekki þann „rottulega gjörning“ að taka það upp. Eiríkur benti viðkomandi á að það væri ekki umræðuefnið, það sem hann væri að velta upp væri hvernig þeir hugsa að þetta hafi gengið fyrir sig.